Skírdagur, föstudagurinn langi og páskar

24. mars 2016
Skírdagur 24. mars 

Kl. 17 Söngvahátíð barnanna. Barnakórar og hljómsveit flytja kirkjusöngva með sveiflu! Flytjendur: Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, stjórnandi Helga Loftsdóttir

Graduale futuri, Langholtskirkju, stjórnandi Rósa Jóhannesdóttir

Kórskóli Langholtskirkju, stjórnandi Bryndís Baldvinsdóttir

Barnakór Seljakirkju, eldri og yngri deild, stjórnandi Rósalind Gísladóttir

Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju, stjórnandi: Ása Valgerður Sigurðardóttir

Barnakór Ísaksskóla, stjórnandi: Ása Valgerður Sigurðardóttir ásamt hrynsveit og Klais-orgeli Hallgrímskirkju.

Umsjón Margrét Bóasdóttir, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar. Aðgangur ókeypis

Kl. 20 Skírdagsmessa – Getsemanestund – Föstutónleikar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Schola Cantorum syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Í lok athafnar verður Getsemanestund með afskrýðingu altaris. Altarisklæði og hökull eftir Unni Ólafsdóttur tekið fram til notkunar í guðsþjónustu föstudagsins langa. Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Gesualdo, Lotti og Allegri. Schola cantorum heldur upp á 20 ára afmæli.

 

Föstudagurinn langi 25. mars: 

Kl. 11. Guðsþjónusta. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með messuþjónum. Litanía Bjarna Þorsteinssonar flutt. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Stjórnandi og organisti Hörður Áskelsson.

Passíusálmalestur: Á föstudaginn langa hefst lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar kl. 13. Lesarar úr röðum félaga Mótettukórsins: Gísli Sigurðsson, Guðrún Hólmgeirsdóttir, Halldór Hauksson, Inga Harðardóttir, Svanhildur Óskarsdóttir, Ævar Kjartansson, Guðrún Finnbjarnardóttir, Elva Dögg Melsted, Snorri Sigurðsson og Gunnar Thor Örnólfsson. Stjórnendur eru Svanhildur Óskarsdóttir og Ævar Kjartansson. Hörður Áskelsson og Björn Steinar Sólbergsson leika á orgelið milli lestra.

 

Páskadagur 27. mars 

8.00 Hátíðarguðsþjónusta. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni og messuþjónum. Páskatónlist, m.a. páskahelgileikur úr Hólabók frá 1589 fluttur af Mótettukór Hallgrímskirkju og einsöngvurum úr röðum kórfélaga. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

11.00 Hátíðarmessa. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og messuþjónum. Páskatónlist. Mótettukór Hallgrímskirkju og stjórnandi Hörður Áskelsson. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Kl. 14.00 Ensk messa. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

 

Annar í páskum 28. mars: 

Kl. 11.00 Hátíðarmessa og ferming. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og Ingu Harðardóttur, æskulýðsfulltrúa. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson.

 

Verið velkomin í hlið himins.