Skátamessa á Sumardaginn fyrsta kl. 11 - Útvarpsmessa

19. apríl 2017


Á Sumardaginn fyrsta, 20. apríl er skátamessa í Hallgrímskirkju kl. 11 sem verður einnig útvarpsmessa. Þar munu félagar úr Skátasambandi Reykjavíkur og prestar kirkjunnar þjóna í sameiningu.

Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari. Ræðumaður er Hrönn Pétursdóttir, mótstjóri World Scouts Moot 2017.

Skátakórinn syngur og stjórnandi er Alda Ingibergsdóttir. Organisti og píanóleikari er Aðalheiður Þorsteinsdóttir.

Jón Rafnson spilar á bassa.

Messan verður útvörpuð á Rás 1.

Kakó og kaffi í boði skátana í suðursal kirkjunnar eftir messu.

Verið hjartanlega velkomin.