Sálmafoss á Menningarnótt

16. ágúst 2017

Menningarnótt í Reykjavík 2017


Sálmafoss í Hallgrímskirkju


19. ágúst klukkan 15 - 21


 

Hallgrímskirkja iðar af lífi alla daga og á Sálmafossi á Menningarnótt heimsækja þúsundir gesta kirkjuna til að upplifa Klaisorgelið og hrífandi og fjölbreytta tónlist! Á heila tímanum sameinast allir í söng og gleði með kór og orgelinu. Samfelld dagskrá kl. 15-21 þ.s. 6 nýir sálmar eftir 6 íslenska organista og ljóðskáld verða frumfluttir, 5 kórar koma fram, m.a. Mótettukórinn og Schola cantorum og Klaisorgelið hljómar eitt og með gítar, trompet og selló!

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir! 

Kynnar eru dr. Sigurður Árni Þórðarson sóknarprestur Hallgrímskirkju, Margrét Bóasdóttir söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og Inga Rós Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri Listvinafélags Hallgrímskirkju. Listrænn stjórnandi og ábyrgðarmaður Sálmafoss er Hörður Áskelsson kantor Hallgrímskirkju.

 

 

15.00 Sex nýir sálmar frumfluttir - allir syngi með!

Tónmenntasjóður kirkjunnar fékk sex organista til að velja sér skáld til samstarfs um gerð nýs sálms. Afraksturinn eru sex nýir sálmar, sem bætast nú í flokk sálma sem Tónmenntasjóðurinn hefur pantað hjá skáldum og tónskáldum á undanförnum árum. Mótettukór Hallgrímskirkju frumflytur sálmana, kirkjugestum er boðið að syngja með.

 

Sálmarnir eru:

1. Ég finn þinn anda eftir sr. Hildi Eir Bolladóttur og Eyþór Inga Jónsson organista Akureyrarkirkju

2. Í birtu vonarinnar eftir sr. Þórhall Heimisson og Guðnýju Einarsdóttur organista Hjallakirkju

3. Í svörtum himingeimi eftir sr. Davíð Þór Jónsson og Arngerði Maríu Árnadóttur organista Laugarneskirkju

4. Jesús mér leggur litla sögu á hjarta eftir sr. Sigurð Jónsson og Magnús Ragnarsson organista Langholtskirkju

5. Þú ert þar eftir Vilborgu Davíðsdóttur og Láru Bryndísi Eggertsdóttur organista Horsens í Danmörku

6. Vertu hans kraftaverk eftir Friðrik Erlingsson og Steingrím Þórhallsson organista Neskirkju

 

15.30 Mótettukór Hallgrímskirkju syngur sálmaútsetningar og mótettur undir stjórn Harðar Áskelssonar

 

16.00 Sálmasöngur -allir syngi með!

Schola cantorum leiðir sönginn.

16.10 “Dagur er nærri” Schola cantorum syngur hugljúfa kórtónlist undir stjórn Harðar Áskelssonar

16.30 Björn Steinar Sólbergsson flytur fjölbreytta orgeltónlist.

 

17.00 Sálmasöngur -allir syngi með!

Söngsveitin Fílharmónía leiðir sönginn.

17.10 Söngsveitin Fílharmónía flytur fjölbreytta kórtónlist undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar

17.45 Vestfossen Blandakor frá Noregi undir stjórn Gróu Hreinsdóttur flytur norska kórtónlist

 

18.00 Sálmasöngur -allir syngi með!

Kór Neskirkju í Reykjavík leiðir sönginn

18.10 Kór Neskirkju ásamt stjórnanda sínum Steingrími Þórhallssyni organista Neskirkju flytur fjölbreytta kór- og orgeltónlist.

 

19.00 Sálmasöngur -allir syngi með!

Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti leiðir sönginn.

19.10 Lára Bryndís Eggertsdóttir flytur orgeltónlist úr ýmsum

19.30 ORGA, íslenskt danskt gítar- og orgeldúó flytur útsetningar og eigin tónlist.

Dúóið skipa Þór Arnarsson gítar og Thunbo Pedersen orgel

 

20.00 Sálmasöngur -allir syngi með!

Björn Steinar Sólbergsson organisti leiðir sönginn

20.10 Orgel, trompet, og selló

Baldvin Oddsson trompetleikari, Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari og organistarnir Steinar Logi Helgason, Björn Steinar Sólbergsson og Hörður Áskelsson ljúka Sálmafossi með sindrandi tónum.

Hérna er bæklingurinn í tölvutæku formi:

Sa?lmafoss (2017) dagskra?_vefur