Söngvahátíð barnanna á Skírdag kl. 14

11. apríl 2017


SÖNGVAHÁTIÐ BARNANNA Í HALLGRÍMSKIRKJU

Á SKÍRDAG 13. APRÍL KL. 14.00 (ATH. BREYTTAN TÍMA)

 

UM 100 börn og unglingar úr 7 barna- og unglingakórum flytja fjölbreytta efnisskrá við undirleik úrvals jazzhljóðfæraleikara, en þeir eru Agnar Már Magnússon á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Pétur Grétarsson á slagverk, en Björn Steinar Sólbergsson leikur einnig með á orgel, m.a. í Slá þú hjartans hörpustrengi.

 

Dagskráin er um 60 mínútur að lengd með mjög fjölbreyttri efnisskrá.

Tónleikagestir fá einnig að taka lagið með börnunum.

 

Kórarnir sem taka þátt í Söngvahátíð barnanna í ár eru:

 

Barna- og Unglingakór Hallgrímskirkju og

Barnakór Ísaksskóla

stjórnandi: Ása Valgerður Sigurðardóttir

 

Barnakór Bústaðakirkju

stjórnandi: Svava Kristín Ingólfsdóttir

 

Barnakór Seljakirkju

stjórnandi: Rósalind Gísladóttir

 

Barnakór Kálfatjarnarkirkju

stjórnandi: Elísabet Þórðardóttir

 

Kórskóli Langholtskirkju

stjórnandi: Sólveig Anna Aradóttir

 

Graduale Futuri, Langholtskirkju

stjórnandi: Rósa Jóhannesdóttir

 

Umsjónarmaður og kynnir er Margrét Bóasdóttir söngmálastjóri þjóðkirkjunnar.

 

Þessi árvissi viðburður er afar gleðilegur og fyllist kirkjan af kátum tónleikagestum á öllum aldri.

Ókeypis aðgangur- allir velkomnir!

Hérna er myndband frá hátíðinni í fyrra.