Nýtt íslenskt verk, Sköpun, eftir Finn Karlsson hljómaði í fyrsta sinn við hlið meistaraverka eftir Pärt og Poulenc – öll flutt af frábærum listamönnum í hátíðarleg rými Hallgrímskirkju.
Flytjendur voru Kór Hallgrímskirkju, Kammersveit Reykjavíkur ásamt Unu Sveinbjarnardóttur konsertmeistara og framúrskarandi sólóistum, Jónu G. Kolbrúnardóttur sópransöngkonu og Birni Steinari Sólbergssyni organista sem sameinuðust undir stjórn Steinars Loga Helgasonar í metnaðarfullri dagskrá þar sem klassísk meistaraverk mæta nýrri íslenskri kirkjutónlist. Frumflutningur verki Finns Karlssonar – Sköpun – var hápunktur dagsins!