Sorg, samtal og kyrrð í nóvember

04. nóvember 2019


Miðvikudagana 6., 13., 20. og 27. nóvember kl. 17.00 verða stundir í Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni: „Sorg, samtal og kyrrð“.  

Stutt inngangserindi verða í höndum presta sem hafa áralanga  reynslu af starfi með syrgjendum
Prestarnir eru Sigurður Árni Þórðarson, Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Sigfús Kristjánsson, Sigrún Óskarsdóttir og Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir.
Eftir erindin verður boðið til samtals þar sem hægt er að spyrja spurninga, deila reynslu eða þiggja góð ráð á ferðinni um veg sorgarinnar en fyrirlesararnir leiða samtalið.
Að lokum er boðið upp á að ganga inn í kirkjuna, hlýða á öríhugun við ljósbera kirkjunnar og tendra ljós í minningu þeirra sem látin eru. 


Verið velkomin.