Sorgin, ástin, lífið

07. október 2019
Miðvikudaginn 9. október kl. 12-12,45 í Norðursal Hallgrímskirkju. 

Guðný Hallgrímsdóttir, prestur flytur erindið: „Lífið heldur áfram - eftir skilnað“.
Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.
Í fimm frásögnum miðla framsögumenn reynslu af áföllum, sorg, missi, ást og lífi. Þau ræða um viðbrögð, hvaða innsæi úrvinnsla veitir og hvernig hægt er að lifa eftir umsnúninginn.
Umsjón dagskrár hafa prestar Hallgrímskirkju: Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson.