Sorgin, ástin, lífið - Síðasti fyrirlesturinn í október

29. október 2019
Miðvikudagur 30. október kl. 12-12,45 í Norðursal Hallgrímskirkju. 

Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur flytur erindið: „Ástin, drekinn og dauðinn“.
Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.
Í fimm frásögnum miðla framsögumenn reynslu af áföllum, sorg, missi, ást og lífi. Þau ræða um viðbrögð, hvaða innsæi úrvinnsla veitir og hvernig hægt er að lifa eftir umsnúninginn.
Umsjón dagskrár hafa prestar Hallgrímskirkju: Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson.