Ástin í Passíusálmunum

27. febrúar 2021
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar eru tengdir föstunni, tímanum fyrir páska, enda fjalla sálmarnir um píslargöngu Jesú Krists. Er einhver ást, ástarþema eða ástarsaga í þessum sálmum. Sigurður Árni Þórðarson fjallar um ástina í Passíusálmunum þriðjudaginn 2. mars kl. 12,15 í Suðursal Hallgrímskirkju. Þessari fræðslusamveru verður ekki streymt en verður birt sem hljóðskrá – podcast – síðar sama dag. Allir velkomnir og fimmtíu manns mega vera á samverunni.

Myndin er eftir Barböru Árnason. Bakgrunnur frummyndinnar var hvítur en ekki rauður.