Sveitarúntur 16. júní

15. júní 2019

Farið verður í stutta safnaðarferð eftir messu í Hallgrímskirkju sunnudaginn 16. júní.
Ekið verður með rútu á Hvolsvöll þar sem snæddur verður síðbúinn hádegisverður og síðan skoðuð Eldfjalla- og jarðskjálftasýningin á Hvolsvelli, Lavacentre .
Einnig er á dagskrá að skoða kirkjuna á Breiðabólsstað í Fljótshlíð.

Lagt verður af stað frá Hallgrímskirkju kl. 12.15 og áætluð heimkoma er um kl. 18.00.           Allir velkomnir og gjald fyrir ferðina er kr. 5.500.