Sýningin Jólin hans Hallgríms í Hallgrímskirkju

14. nóvember 2023

Sýningin „Jólin hans Hallgríms“ hefur verið í Hallgrímskirkju síðustu sjö ár og núna í áttunda sinn býður Hallgrímskirkja leikskóla- og grunnskólabörnum í Reykjavík og nágrenni, að koma í heimsókn í Hallgrímskirkju í aðdraganda jólanna. Sýningin byggir á samnefndri bók Steinunnar Jóhannesdóttur.

Í heimsókninni er skoðunarferð um kirkjuna og sagt frá kirkjumunum. Börnin fá stutta endursögn úr bókinni Jólin hans Hallgríms og hún segir frá undirbúningi jólanna hjá Hallgrími Péturssyni þegar hann var ungur drengur og hvernig jólin voru fyrir 400 árum á Íslandi. Verkefnið hefur mælst vel fyrir og fengið góð viðbrögð.

Baðstofa var gerð fyrir sýninguna. Þar er hægt að vitja jóla fortíðar. Í baðstofunni má finna muni sem fjallað er um í bókinni og leikararnir Níels Thibaud Girerd og Pálmi Freyr Hauksson töfra upp jólastemningu sem vísa til sögunnar.

Börnum á aldrinum 3 til 10 ára er boðið að koma í skóla- eða hópheimsókn. Hópar geta bókað heimsókn með því að senda tölvupóst til Hallgrímskirkju á netfangið vidburdir@hallgrimskirkja.is.
Aðgangur er ókeypis!

Tekið verður á móti hópum á virkum dögum frá 1. desember til 20. des. Hver heimsókn tekur u.þ.b. 40 mín. Hægt er að bóka heimsókn á alla virka daga á milli 10:00-10:40, 11:00-11:40, 12:00-12:40 & 13:00-13:40.

Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er ýmislegt kunnuglegt við undirbúning jólanna hjá heimilisfólkinu í Gröf á Höfðaströnd þar sem Hallgrímur átti heima. Þá eins og nú kviknar ljós í hjörtum mannanna þótt myrkrið grúfi yfir.

Hér má finna skemmtilegt kynningarmyndband frá leikurunum Níels og Pálma um Jólin hans Hallgríms.

Hallgrímskirkja býður ykkur velkomin!