Thierry Mechler leikur á orgeltónleikum bæði á laugardaginn 28. júlí kl. 12 og sunnudaginn 29. júlí kl. 17

27. júlí 2018
Laugardaginn 28. júlí kl. 12 leikur franski organistinn og tónskáldið Thierry Mechler verk eftir Bach (Goldberg-tilbrigðin),Boëly og sjálfan sig. Mechler er organisti Fílharmóníunnar í Köln og einnig orgelprófessor í sömu borg.

Miðaverð er kr. 2.000.

Hægt er að kaupa miða í anddyri kirkjunnar klukkustund fyrir tónleika, en einnig er hægt að kaupa miða á midi.is.

 

Á seinni tónleikum sínum, sunnudaginn 29. júlí kl. 17 leikur Thierry Mechler, organisti Fílharmóníunnar í Köln, verk eftir Rameau, Fauré, Ravel, Satie, Poulenc, Dutilleux (Hommage à Bach), Debussy (Hommage à Rameau) og sjálfan sig.

Miðaverð er kr. 2.500.

Miðasala í Hallgrímskirkju opnar klukkutíma fyrir hverja tónleika en einnig má kaupa miða á midi.is

 

 

Franski organistinn og tónskáldið Thierry Mechler er frá syðsta hluta Elsass í Frakklandi þar sem hann býr ásamt fjölskyldu sinni. Hann er orgelleikari Fílharmóníuhljómsveitar Kölnar og prófessor í orgelleik og orgelspuna við Tónlistar- og dansháskólann í Köln.

Thierry var í orgelnámi hjá Daniel Roth í Strassborg og hjá Marie Claire Alain í París, spuna hjá Jacques Taddei og píanóleik hjá Hélène Boschi.

Allt frá námsárum sínum hefur Thierry verið vinsæll konsertorganisti og hann hefur haldið tónleika víðs vegar um heiminn auk þess sem hann er virtur dómari í orgelkeppnum og eftirsóttur sem fyrirlesari og kennari á meistaranámskeiðum.

Árin 1986?1989 kenndi hann við ríkistónlistarháskólann í Annecy. Árið 1984 varð hann organisti Frúarkirkjunnar í Thierenbach í Elsass og frá 1991 til 1999 var hann aðalorganisti Dómkirkjunnar í Lyon. Á sama tíma var hann listrænn stjórnandi Alþjóðlegu orgelhátíðarinnar í Maurice Ravel tónlistarsalnum þar í borg. Árið 1998 var hann svo ráðinn orgelprófessor í Köln og starfið við Fílharmóníuna bættist við 2002.