Tónleikahald og opnun sýningar um Hvítasunnu

12. maí 2016


Mikið verður um dýrðir í Hallgrímskirkju þessa Hvítasunnuhelgi. Fólk og fiskar, orgel og unaðslegur söngur.

Hulda Hákon, Hörður Áskelsson og Mótettukórinn um Hvítasunnuhelgina í Hallgrímskirkju. 

Laugardaginn 14. maí:

Hátíðin hefst um hádegisbil (kl. 12) laugardaginn 14. maí með tónleikum Harðar. Leikin verða hvítasunnutengd orgelverk eftir J.S. Bach, D´Grigny, Buxtehude og Johann Walter.

Aðgangseyrir: 2.000 kr. Hægt er að kaupa miða við innganginn.

Sunnudaginn 15. maí:

Strax eftir sunnudagsmessuna, kl. 12.15, opnar ný myndlistarsýning í forkirkjunni.

Hulda Hákon er landsmönnum að góðu kunn fyrir afar skemmtilegar, fígúratífar lágmyndir.

Sýning hennar kallast Pétur og samanstendur af lágmyndum er hafa tengsl við sjósókn Íslendinga og trúna á heilagan Pétur, fiskveiðimanninn unga er gerðist lærisveinn Jesú. Sýningin stendur til 28. ágúst og eiga myndir Huldu áreiðanlega eftir að gleðja þann fjölda gesta sem í kirkjuna kemur í sumar. Allir eru velkomir á þessa skemmtilegu opnun og verða léttar veitingar í boði.

 

Rúsínan í pylsuenda þessarar ágætu hvítasunnuhelgar verða svo tónleikar Mótettukórsins, sem hefjast kl. 17 hvítasunnudaginn 15. maí. Til landsins er væntanlegur hinn þekkti, þýski upptökustjóri Jens Ulrich Braun sem meðal annars hefur gert hefur fjölda vandaðra upptaka fyrir BIS og mun taka upp nýja geislaplötu kórsins. Mótettukórinn og Hörður hafa valið uppáhaldsverk kórsins frá 35 ára ferli hans og æft af kappi fyrir upptökurnar framundan. Kórinn mun flytja þessi uppáhaldsverk á tónleikunum, þar á meðal þætti úr Messu eftir Frank Martin, kafla úr Vesper eftir Rachmaninoff, verk eftir Bruchner, Messiaen, Pablo Casals, Durufle, Knut Nystedt, Hreiðar Inga og Halldór Hauksson.

Aðgangseyrir: 3.500 kr. / 50% afsláttur fyrir Listvini: 1.750 kr. Miðasala inn á midi.is, við innganginn og í gegnum síma 5101000.

Verið velkomin á viðburði helgarinnar og hlökkum til að sjá ykkur!