ÚTHLUTAÐ ÚR LÍKNARSJÓÐI & KLUKKURNAR Í GRÍMSEY

14. desember 2023

ÚTHLUTAÐ ÚR LÍKNARSJÓÐI
Sóknarnefnd Hallgrímssafnaðar úthlutaði 4 milljónum króna úr Líknarsjóðði Hallgrímskirkju á jólafundi sínum 12. desember síðastliðinn. Meginhluta fjármunanna var varið til Hjálparstarfs kirkjunnar og Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Einnig var 500 þúsund krónum ráðstafað til Skjólsins sem er opið hús fyrir konur sem glíma við heimilisleysi, búa við óöruggar aðstæður eða eru nýkomnar í búsetuúrræði eftir heimilisleysi. Þá hefur Miðvikudagssöfnuðurinn safnað kr. 400 þúsund á árinu sem varið er að venju til Kaffistofu Samhjálpar.

KLUKKURNAR Í GRÍMSEY
Á jólafundi sóknarnefndar kom fram að safnast hefur nærri ein milljón króna í tengslum við sýningu í anddyri kirkjunnar á klukkunum sem Hallgrímskirkja hefur beitt sér fyrir að gefnar verði Miðgarðakirkju í Grímsey sem verið er að endurreisa eftir brunann 2021. Klukkurnar sem steyptar voru hjá konunglegu Eijsbouts klukkusteypunni í Hollandi hafa nú verið ferjaðar út í eyju og bíða þess þar að klukkuturn nýju kirkjunnar verði tilbúinn