Fréttir: Mars 2018

Foreldramorgnar í kórkjallara

19.03.2018
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.  

Árdegismessa

19.03.2018
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

19.03.2018
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun sr. Birgir Ásgeirsson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.  

Hádegisbæn

19.03.2018
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og barnastarf 18. mars kl. 11

16.03.2018
Messa og barnastarf 18. mars 2018 kl. 11. Boðunardagur - Fimmti sunnudagur í föstu Sr. Birgir Ásgerisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Einsöngvari er Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með...

Kyrrðarstund

14.03.2018
Á fimmtudögum eru kyrrðarstundir í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Síðasta hádegiserindið

13.03.2018
Næstu miðvikudaga verða hádegiserindi kl. 12 í Suðursal Hallgrímskirkju. Eftir erindin verður opið fyrir umræðu og spurningum. Allir eru velkomnir. 14.03. ,,…SEM LJÚFUR SUMARVINDUR…“ HJALTI HUGASON PRÓFESSOR Í KIRKJUSÖGU TALAR UM LJÓÐLIST VILBORGAR DAGBJARTSDÓTTUR RITHÖFUNDAR.  