Fermingar 2020 og fræðslan

28. ágúst 2019
Fermingarfræðslan í Hallgrímskirkju hefst sunnudaginn 1. september. Eftir messuna kl. 11 verður upplýsingafundur í kórkjallara Hallgrímskirkju. Þar verður farið yfir dagskrá vetrarins og áhersluþætti fermingarfræðslunnar. Fræðslan er opin öllum, hvort sem þau búa innan eða utan sóknar og trúfélagsaðild að þjóðkirkjunni er ekki skilyrði. Þau sem eiga eftir að skrá sig í fræðsluna geta gert það á fundinum á sunnudag eða rafrænt á www.hallgrimskirkja.is

Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Kristný Ósk Gústafsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson