ARVO PÄRT – POULENC – FINNUR KARLSSON
Sunnudaginn 18. maí kl. 17:00 frumflytur Kór Hallgrímskirkju ásamt Kammersveit Reykjavíkur og Unu Sveinbjarnardóttur konsertmeistara nýtt verk eftir tónskáldið Finn Karlsson. Sópransöngkonan Jóna G. Kolbrúnardóttir syngur einsöng i verkinu og stjórnandi er Steinar Logi Helgason.
Verkið ber heitið Sköpun og er samið sérstaklega fyrir kór, sópran og hljómsveit. Þar vefur tónskáldið saman texta úr þremur áttum. Í fyrsta lagi úr sköpunarsögu Fyrstu Móse-
bókar og úr upphafi Jóhannesarguðspjalls, í öðru lagi úr sálmi Hallgríms Péturssonar Í upphafi fyrir sitt eilíft orð sem ortur er út af sköpunarsögunni og þriðji textinn er ljóðið Guð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur við ljóðræn og hlaðin hljóðform þar sem andrúmsloft kirkjunnar. Sköpun kallast á við aldagamla hefð kirkjutónlistar – en með nútímalegri rödd og nýrri sýn og má segja að rými sköpunarsögunnar mætist í þessum flutningi.
Á efnisskránni eru einnig tvö meistaraverk 20. aldar kirkjutónlistar: Fratres eftir Arvo Pärt og Orgelkonsert eftir Francis Poulenc, þar sem organisti Hallgrímskirkju Björn Steinar Sólbergsson fer með einleik með Kammersveit Reykjavíkur.
Kirkjutónlist hefur gegnt lykilhlutverki í menningarsögu Íslendinga. Hún hefur verið leið til tjáningar, trúar, sköpunar og samfélags – frá sálmakveðskap Hallgríms Péturssonar til nútímatónsmíða sem endurspegla nýja tíma og ný sjónarhorn á andleg efni. Í Hallgrímskirkju heldur þessi hefð áfram að þróast og blómstra – í sálmasöng, tónlistarflutningi og frumsköpun sem tengir andlega arfleifð við samtímann.
Á tónleikunum hljómar fyrst verkið Fratres eftir Arvo Pärt, eitt þekktasta og áhrifamesta verk hans. Verkið er órjúfanlega tengt einkennandi stíl Pärts, svonefndri „tintinnabuli“-aðferð, þar sem einfaldleiki og kyrrð skapa djúpa andlega vídd. Fratres hefur verið flutt í fjölmörgum útgáfum fyrir ólíka hljóðfærasamsetningu og vekur áheyrendur til umhugsunar um tíma, trú og innri ró. Í Hallgrímskirkju fær það nýja dýpt í samspili rýmis, hljómsveitar og hljómburðarins í þessum einstaka helgidómi.
Á tónleikunum leikur Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju, hinn áhrifamikla Orgelkonsert eftir Francis Poulenc – eitt þekktasta og áhrifamesta verk fyrir orgel og strengjasveit á tuttugustu öldinni.
Konsertinn, sem var saminn árið 1938, sameinar dramatík, einlægni og leikandi léttleika í djúpu persónulegu og trúarlegu verki. Hljómheimur hans er bæði hátíðlegur og óvæntur – með áhrifum frá barokkstíl og frönskum nútímaorgelhefðum.
Björn Steinar er meðal virtustu tónlistarmanna landsins og hefur leikið á fjölda tónleika bæði heima og erlendis. Sem organisti Hallgrímskirkju, tónlistarstjóri og listrænn stjórnandi Orgelsumars í Hallgrímskirkju gegnir hann lykilhlutverki í því að gera kirkjuna að alþjóðlegri miðstöð orgeltónlistar.
Flutningur hans á þessu stórvirki markar áhrifaríkan kafla tónleikanna – flutt á Klais orgel Hallgrímskirkju, einu því glæsilegasta á Norðurlöndum.
Tónleikarnir eru hluti af 50 ára afmælisári Kammersveitar Reykjavíkur, en sveitin hefur í hálfa öld verið í fararbroddi nýsköpunar og gæða í íslensku tónlistarlífi. Með áherslu á fjölbreytt efnistök og samstarf við íslensk tónskáld hefur Kammersveitin markað sér sérstakan sess á sviði kammer- og samtímatónlistar hér á landi.
Það er því sérlega viðeigandi að hún sameinist Kór Hallgrímskirkju í frumflutningi á nýju íslensku tónverki og flutningi á meistaraverkum 20. aldarinnar í einni mikilvægustu tónleikakirkju landsins – Hallgrímskirkju.
Fleiri upplýsingar um tónleikana og flytjendur má finna að baki þessarar smellu!
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á tónleika – sem eru ekki aðeins listræn upplifun, heldur samtal milli fortíðar, nútíðar og trúarlegra hljóma.
Miðasala fer fram á tix.is og í Hallgrímskirkju og er aðgangseyrir 5.900 kr.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR!