Tóneyra, textar og trú – viðtal við tónskáldið Finn Karlsson um nýtt verk og frumflutning í Hallgrímskirkju

16. maí

Í dag ræðum við við tónskáldið Finn Karlsson, nýtt verk hans - Sköpun verður frumflutt í Hallgrímskirkju núna 18. maí.

Verkið er hluti af tónleikum þar sem einnig verða flutt stórvirki eftir Arvo Pärt og Francis Poulenc, og er því um sérlega áhugaverða samsetningu að ræða – nýr íslenskur tónheimur í samtali við klassísk meistaraverk kirkjutónlistar. Við ætlum að heyra meira um verkið sjálft, innblásturinn að baki og hvernig það er að semja tónlist fyrir þetta einstaka rými.

Gætirðu sagt okkur frá verkinu sem frumflutt verður á tónleikunum? Hvað vakti innblástur þess?
Verkið heitir Sköpun og er skrifað fyrir þetta tilefni. Svanhildur Óskarsdóttir, kórmeðlimur og snillingur, safnaði þessum ólíku textum saman og raðaði þeim upp í þetta skemmtilega form sem ég hélt mig svo algjörlega við. Tæpur helmingur kaflanna eru skrifaðir við texta Biblíunni á latínu úr og á móti koma erindi úr sálminum Í upphafi fyrir sitt eilíft orð eftir Hallgrím Pétursson. Í miðju verkinu skrifa ég svo við ljóðið Guð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, en það birtist svo aftur í lokakafla verksins. Verkið er 12 kaflar í allt og tekur um hálftíma í flutningi.

Hvernig tengist verkið þema tónleikanna og verkum Arvo Pärt og Poulenc?
Ég var í raun ekkert að spá í þeim félögum á meðan ég skrifaði verkið, þó tónlist þeirra beggja hafi lengi verið í uppáhaldi hjá mér. En svona eftirá að hyggja finnst mér þessi þrjú verk tóna ágætlega saman og mynda vel balanseraða efnisskrá.

Hefur þú áður unnið með Kór Hallgrímskirkju eða Kammersveit Reykjavíkur? Hvernig hefur samstarfið verið og hvernig er það að þessu sinni?
Já, ég hef áður unnið með báðum hópum. Kammersveitin pantaði af mér verkið From My Green Karlstad ásamt strengjasveitinni Elblag Chamber Orchestra árið 2018 og svo skrifaði ég verkið HÝENA SEM HEITIR GÆRDAGUR fyrir þau og uppáhalds söngkonuna mína, Þórgunni Önnu Örnólfsdóttur árið 2023. Kór Hallgrímskirkju pantaði fyrst af mér verkið Á hvítasunnu fyrir kór og orgel árið 2022 og svo Hosanna filio David árið 2024

Þetta er því þriðja verkið sem ég skrifa fyrir sitthvorn hópinn. Samstarfið við báða hópa hefur alltaf verið mjög gefandi fyrir mig og ég vona innilega að það muni halda lengi áfram.

Hvernig nálgast þú tónsmíðarferlið almennt? Hefur það breyst með tímanum?
Það er í raun allur gangur á því hvernig ég nálgast tónsmíðaferlið. Það fer mikið eftir hljóðfærasamsetningunni, tilefninu, hvort ég sé að vinna með áhuga- eða atvinnufólki, hversu langan tíma ég hef til stefnu og hvernig stuði ég er í. Ég reyni samt alltaf að setja mig í spor flytjendanna og ég held að ég eigi ekki mörg verk sem ég myndi ekki nenna að flytja sjálfur (gæti ég það).

Ég veit ekki hvort þetta hafi breyst mikið með árunum, nema ég vil halda að ég sé alltaf að verða sjóaðri í þessu. Ég held að ég gæti samt verið að mýkjast með tímanum.

Hvaða hlutverki gegnir texti í tónsmíðum þínum, sérstaklega þegar unnið er með söng?
Textinn skiptir náttúrulega mjög miklu máli þegar maður er að skrifa fyrir raddir. Maður hefur vissulega ákveðinn meðvind þegar maður er að vinna með texta sem talar til manns. Það er mikil ábyrgð að vera treyst fyrir ljóðum annara, en samkvæmt minni reynslu taka ljóðskáld yfirleitt vel í það þegar maður vill skrifa tónlist við verk þeirra. Ég er allavega enn að bíða eftir fyrsta nei-inu mínu, en ég hef sent mjög mörg köld messenger skilaboð á skáld sem ég þekki lítið eða ekkert.

Hvaða tónskáld eða tónlistarstefnur hafa haft mest áhrif á þig?
Ég á alltaf pínu erfitt með þessa spurningu og reyni yfirleitt að koma mér undan því að gefa upp ákveðin nöfn. Ég er samt alæta á tónlist og hef sjálfur komið mjög víða við í mínum tónlistarferli.

Hvernig hefur rýmið í Hallgrímskirkju haft áhrif á tónsmíðina eða flutning verksins?
Hallgrímskirkja er náttúrulega magnað rými og ég var með það í kollinum á meðan ég skrifaði tónlistina. Hér er ég ekki bara að tala um akústíkina, sem ég tók vissulega tillit til, heldur líka stemninguna inni í þessari fallegu byggingu.

Ertu með fleiri verkefni í vinnslu eða á döfinni sem þú getur sagt okkur frá?
Það sem ég er með á skrifborðinu akkúrat núna er stutt einleiksverk fyrir fiðluleikarann Sibba Bernarðsson. Þar á eftir mun ég skrifa nýtt verk fyrir Dúó Freyju; mæðgurnar Svövu Bernaðsdóttur og Rannveigu Mörtu Sarc.

Hvernig sérðu fyrir þér næstu skref í þinni tónskáldabraut?
Ég er ekki með flóknara plan en að halda áfram að halda áfram að skrifa tónlist.

Það var bæði ánægjulegt og nærandi að heyra Finn tala um verkið Sköpun og ferlið sem liggur að baki – hvernig textar úr Biblíunni, sálmum Hallgríms Péturssonar og ljóði Vilborgar Dagbjartsdóttur mynda saman lífræna heild sem spannar bæði trúarlega dýpt og nútímalegan tónheim. Hann nálgast tónsmíðar af fagmennsku og einlægni og með virðingu fyrir textanum. Hann er með næmt auga fyrir samvinnu við flytjendur og rými. Það verður spennandi að heyra verkið í lifandi flutningi innan veggja Hallgrímskirkju, þar sem andrúmsloft og akústík mynda frjósaman jarðveg fyrir þessa nýju Sköpun.

Bestu þakkir Finnur!

Að baki þessarar sellu má finna fleiri upplýsingar um tónleikana og flytjendur.

Einnig var bráðskemmtilegt viðtal við Finn og Björn Steinar Sólbergsson tónlistarstjóra og organista í HAllgrímskirkju í Víðsjá á RÚV í gær þar sem þeir ræddu um tónleikana á sunnudaginn og frumflutning verksins Sköpun í viðtali við Melkorku Ólafsdóttur.
 
Hlusta má á viðtalið hér að neðan en samtal við Finn og Björn Steinar hefst á ca 31:10:
 
Hér má einnig finna viðburðinn á Facebook: ARVO PÄRT – POULENC – FINNUR KARLSSON
 
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR!

 

HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR!