Fréttir: Desember 2015

Prjóna kvöld - Miðvikudaginn 11. nóvember

11.11.2015
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna á prjónakvöld hér í Hallgrímskirkju með Erlu Elínu miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 19:30 - 22:00  

Foreldramorgnar í kórkjallara

10.11.2015
Foreldramorgnar eru alla miðvikudaga kl. 10.00 – 12.00 í kórkjallara kirkjunnar. Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir sjá um fjörið sem inniheldur leik, söng og spjall með smá veitingum. Allir foreldrar með ungana sína eru hjartanlega velkomnir.

Þriðjudagsæfing barna og unglingakórs Hallgrímskirkju

10.11.2015
Þriðjudaginn 11. nóvember kl. 16.30 – 17.30 er æfing hjá kórnum en hann æfir að jafnaði tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum á þessum tíma. Kórinn er ætlaður stúlkum og drengjum á aldrinum 10-13 ára, af höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum. Verkefni kórsins í vetur er meðal annars söngur í fjölskyldumessu,...

Árdegismessa

10.11.2015
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna í árdegismessu í kór kirkjunnar kl. 8 miðvikudaginn 11. nóvember. Prestar kirkjunnar þjóna en fulltrúar úr söfnuðinum leiða bænagjörð, forsöng og aðstoða við útdeilingu.  

Liðug á líkama og sál

09.11.2015
Starf eldri borgara í kórkjallaranum. Leikfimi, súpa og spjall. Samverurnar á þriðjudögum kl. 11.00 - 13.00 og eru í umsjá Mjöll Þórarinsdóttur. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

09.11.2015
Dr. Sigurður Árni Þórðarsson sóknarprestur kirkjunnar leiðir fyrirbænamessu í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 10.30 - 11.00. Allir velkomir.  

Hádegisbæn á mánudögum

09.11.2015
Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir ávallt bænastundir á mánudögum í vetur kl. 12.15 – 12.30. Stundin er hjá myndinni af Maríu mey norðanmeginn í kirkjunni. Verið velkomin til bænahalds.

Leifur og Sigríður tala um listaverk sín

05.11.2015
HjóninLeifur Breiðfjörð og Sigríður G Jóhannsdóttir hafa unnið stórvirki fyrir Hallgrímskirkju. Hinn mikli vesturgluggi kirkjunnar er verk Leifs og einnig skírnarfontur kirkjunnar. Hann sá um listræna hönnun aðaldyra kirkjunnar og útfærðslu prédikunarstólsins. Sigríður G. Jóhannsdóttir hefur damaskofið altarisdúka fyrir Hallgrímskirkju. Dúkarnir...

Kristniboðsdagurinn 8. nóvember kl. 11

05.11.2015
Sunnudagurinn 8. nóvember er kristniboðsdagurinn í kirkjum landsins og mikið um dýrðir kl. 11.00  í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Leonard Ashford. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja í messunni og orgelleik annast Hörður Áskelsson. Inga Harðardóttir hefur...