Fréttir: Desember 2016

Liðug á líkama og sál

17.10.2016
  Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

17.10.2016
Á morgun, þriðjudaginn 18. október kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn á mánudögum

16.10.2016
Mánudaginn 17. október er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Kraftaverk í Hallgrímskirkju

14.10.2016
Messa og barnastarf 16. nóv. kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson talar um kraftaverk í prédikun og þjónar fyrir altari ásamt sr. Þorvaldi Karli Helgasyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfinu hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Kaffisopi eftir...

Fyrsti kvenfélagsfundur vetrarins!

13.10.2016
Á fyrsta kvenfélagsfundi vetrarins sem hefst kl. 20.00 í suðursal kirkjunnar mun Sigríður Jóna Norekvist, fyrrverandi kirkjuvörður segja frá því þegar hún starfaði hér við kirkjuna í kringum vígsluna. Núna í október fagnar Hallgrímskirkja 30 ára vígsluafmæli en Sigríður Jóna starfaði þegar hún var vígð og ætlar að segja okkur frá því. Í boði...

Kyrrðarstund

11.10.2016
Kyrrðarstund er á sínum stað og verður fimmtudaginn 29. september kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og organsti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin!

Árdegismessa

10.10.2016
Miðvikudaginn 12. október kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

10.10.2016
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

10.10.2016
Á morgun, þriðjudaginn 11. október kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.