Fréttir: Júlí 2016

Árdegismessa

11.07.2016
Árdegismessur kl. 8 á miðvikudögum halda áfram í allt sumar. Þetta er góð leið til þess að byrja daginn, þar sem sungið er, beðið og hlýtt á hugleiðingu í góðu samfélagi. Dr. Sigurður Árni Þórðarson og messuþjónar þjóna. Morgunmatur og kaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

11.07.2016
Á morgun, þriðjudaginn 12 júíí kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum eins og ávallt á þriðjudögum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Ísland vann Euro 2016

11.07.2016
Aldrei hefur Íslendingum þótt eins gaman að vera í Evrópu. Af hverju? Ekki vegna töfra í tánum eða allra markanna á EM í fóbolta. Fótboltinn er ekki boltaböl heldur gegnir trúarlegum hlutverkum sem vert er að íhuga. Í prédikun 10. júlí var fjallað um trú, knattspyrnu, lífið og mál hjartans. Prédikunin er á tru.is og sigurdurarni. is

Messa og sögustund 10. júlí kl. 11

08.07.2016
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Barn borið til skírnar. Fermdur verður Þorri Jakob Jónsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með sögustundinni hefur Ragnheiður Bjarnadóttir. Verið hjartanleg velkomin. Guðspjall...

Alþjóðlegt orgelsumar - Tónleikar á fimmtudegi og um helgina

06.07.2016
Fimmtudagur kl. 12 Konur og Klais Orgelverk eftir kventónskáld leikin í Hallgrímskirkju Orgelverk eftir konur verða leikin á Klais-orgel í Hallgrímskirkju fimmtudaginn 7. júlí kl. 12, en þá heldur Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti Akureyrarkirkju, tónleika á Alþjóðlegu orgelsumri. Tónskáldin eru fædd í Evrópu og Bandaríkjunum á 19. og 20....

Sumartónleikar Schola Cantorum í Hallgrímskirkju í dag

06.07.2016
Sumartónleikar Schola cantorum í Hallgrímskirkju í dag Hinn margverðlaunaði kammerkór Hallgrímskirkju syngur tónleika í hádeginu í dag, miðvikudag, á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju. Kórinn er þekktur fyrir einstaklega tæran hljóm sinn. Á efnisskránni eru íðilfögur kórverk án undirleiks sem valin eru með tilliti til hljómburðar...

Foreldramorgnar í kórkjallara

05.07.2016
Hinir fjörugu foreldramorgnar í kórkjallaranum halda áfram í allt sumar á miðvikudögum kl. 10 – 12. Foreldrar með krílin sín eru hjartanlega velkomin. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur. Samvera sem inniheldur söng, leik og skemmtun í góðum hópi. Verið velkomin.

Árdegismessa

05.07.2016
Árdegismessur kl. 8 á miðvikudögum halda áfram í allt sumar. Þetta er góð leið til þess að byrja daginn, þar sem sungið er, beðið og hlýtt á hugleiðingu í góðu samfélagi. Sr. Birgir Ásgeirsson og messuþjónar þjóna. Morgunmatur og kaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og sögustund 3. júlí kl. 11

01.07.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með sögustundinni hefur Inga Harðardóttir. Kaffisopi eftir messu. Verið velkomin Textar: Lexía: Jes 43.1-7 En nú segir Drottinn svo, sá sem skóp þig, Jakob, og...