Fréttir: Mars 2017

Árdegismessa

21.03.2017
Miðvikudaginn 22. mars kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

20.03.2017
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir, Mjöll Þórarinsdóttir og Katrín leikfimiskennari sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

20.03.2017
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Prestar leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn

20.03.2017
Á mánudögum er hádegisbæn kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er hjá Maríumyndinni inn í kirkjunni. Opið öllum, verið velkomin.

Eyland og lífland

19.03.2017
Ein af merkilegustu bókum sem ég las í vetur er Eyland eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Ég heillaðist af hugmyndaauðgi og dýpt þessarar skáldsögu. Söguþræðinum verður ekki lýst í nokkrum setningum, en þó hægt að upplýsa að í sögubyrjun detti Ísland úr sambandi við útlönd. Engar flugvélar koma til landsins eða fara, engin skip heldur. Öll...

Tónleikar til styrktar orgelsjóði Hólskirkju

17.03.2017
Tónleikar í Hallgrímskirkju til styrktar orgelsjóði Hólskirkju sunnudaginn 19. mars kl. 16   Miðaverð: 3.500 kr, 14 ára og yngri frá frítt. Orgelsjóður Hólskirkju: Bankareikningur: 0174-18-911908 Kennitala: 630169-5269

Messa og barnastarf

17.03.2017
Messa og barnastarf 19. mars 2017, kl. 11.00 Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfinu hafa Guðjón Andri Rabbevåg Reynisson, Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Hrönn Árnadóttir.

Kyrrðarstund

15.03.2017
Fimmtudaginn 16. mars kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og barnastarf

09.03.2017
Messa og barnastarf 12. mars 2017, kl. 11.00. Annar sunnudagur í föstu Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfinu hafa Inga Harðardóttir, Karítas Hrundar Pálsdóttir og Sunna Karen Einarsdóttir.