Fréttir: Apríl 2017

Messa og barnastarf

28.04.2017
Messa og barnastarf sunnudaginn 30. apríl kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfinu hafa Inga Harðardóttir, Karítas Hrundar Pálsdóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Hrönn...

Tónleikar Tónlistardeildar Listaháskólans í samvinnu við Listvinafélagið

28.04.2017
Þriðju tónleikar nemenda Listaháskóla Íslands á þessu skólaári í samstarfi við Listvinafélag Hallgrímskirkju verða í Hallgrímskirkju laugardaginn 29. apríl kl. 12 og er efniskráin mjög fjölbreytt og glæsileg. Alls koma 16 nemendur fram sem einleikarar og einsöngvarar og verður leikið á Klais orgel Hallgrímskirkju og Bösendorfer flygilinn auk...

AÐALSAFNAÐARFUNDUR

26.04.2017
AÐALSAFNAÐARFUNDUR Hallgrímssóknar verður haldinn í suðursal Hallgrímskirkju sunnudaginn 30. apríl kl. 12:30. Venjuleg aðalfundarstörf. -Sóknarnefndin

Kyrrðarstund

26.04.2017
Fimmtudaginn 27. apríl kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Árdegismessa

25.04.2017
Árdegismessa miðvikudag 26. apríl kl. 8 í Hallgrímskirkju. Frábært tækifæri til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

24.04.2017
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir, Mjöll Þórarinsdóttir og Katrín leikfimiskennari sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

24.04.2017
Þriðjudaginn 25. apríl kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.

Hádegisbæn á mánudögum

23.04.2017
Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir notalega kortérs bænastund í hádeginu á mánudögum kl. 12.15 – 12.30. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið velkomin.

Fermingarmessa og barnastarf 23. apríl kl. 11

20.04.2017
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ingu Harðardóttur æskulýðsfulltrúa. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjá með barnastarfi hafa Karítas Hrundar Pálsdóttir, Sunna Karen Einarsdóttir og Guðjón Andri Rabbevåg Reynisson. Fermd verða: Ísold Anna Garðarsdóttir, Ólöf...