Fréttir: Apríl 2017

Skátamessa á Sumardaginn fyrsta kl. 11 - Útvarpsmessa

19.04.2017
Á Sumardaginn fyrsta, 20. apríl er skátamessa í Hallgrímskirkju kl. 11 sem verður einnig útvarpsmessa. Þar munu félagar úr Skátasambandi Reykjavíkur og prestar kirkjunnar þjóna í sameiningu. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari. Ræðumaður er Hrönn Pétursdóttir, mótstjóri World Scouts Moot 2017. Skátakórinn syngur og stjórnandi...

Árdegismessa

17.04.2017
Árdegismessa miðvikudag 19. apríl kl. 8 í Hallgrímskirkju. Frábært tækifæri til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

17.04.2017
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir, Mjöll Þórarinsdóttir og Katrín leikfimiskennari sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

17.04.2017
Þriðjudaginn 18. apríl kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Messur á páskadegi og annan í páskum

14.04.2017
  Páskasunnudagur:  Kl. 8 í Hallgrímskirkju mun sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Páskatónlist, m.a. Páskahelgileikur úr Hólabók frá 1589 fluttur af Mótettukór Hallgrímskirkju. Einsöngvarar eru kórfélagarnir Gígja Gylfadóttir sópran og Sigurjón Jóhannsson...

Passíusálmalestur á Föstudeginum langa kl. 13 - 18

13.04.2017
Í ár er það breiður hópur rithöfunda, sem flytur sálmana, en rithöfundarnir lesa allir úr hinni nýju vönduðu útgáfu sálmanna sem Mörður Árnason hafði umsjón með og gefin var út fyrir 2 árum hjá Crymogea. Eftirtaldir rithöfundar lesa: Anton Helgi Jónsson, Arngunnur Árnadóttir, Ármann Jakobsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Einar Kárason, Kristín...

Guðþjónusta á Föstudeginum langa kl. 11

13.04.2017
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Píslarsagan lesin og litanía Bjarna Þorsteinssonar sungin. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Verið velkomin.

Skírdagur - Kvöldmessa og Getsemanestund kl. 20

11.04.2017
Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og hópi messuþjóna. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. í lok athafnar verður Getsemanestund með afskrýðingu altarins. Altarisklæði og hökull eftir Unni Ólafsdóttur tekinn fram til notkunar í guðþjónustu...

Söngvahátíð barnanna á Skírdag kl. 14

11.04.2017
SÖNGVAHÁTIÐ BARNANNA Í HALLGRÍMSKIRKJU Á SKÍRDAG 13. APRÍL KL. 14.00 (ATH. BREYTTAN TÍMA)   UM 100 börn og unglingar úr 7 barna- og unglingakórum flytja fjölbreytta efnisskrá við undirleik úrvals jazzhljóðfæraleikara, en þeir eru Agnar Már Magnússon á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Pétur Grétarsson á slagverk, en Björn...