Fréttir: Nóvember 2018

Fyrirbænamessa í Suðursal

19.11.2018
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í Suðursal. Á morgun mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn

19.11.2018
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst kl. 12.15. Verið hjartanlega velkomin.  

Velkomin í Hallgrímskirkju

18.11.2018
Hallgrímskirkja er fjölsótt. Margir koma að ljósberanum á hverjum degi, kyrra huga, biðja bænir og kveikja á bænaljósum. Hópur búddamunka kom síðdegis í kirkjuna. Þeir voru glaðir, ræddu við prestinn, munduðu myndavélar og vildu gjarnan kveikja á kertum. Hallgrímskirkja er opinn helgidómur, hlið himins og opinn öllum. Komið til mín sagði Jesús...

Gunnar, Haukur og unga fólkið

18.11.2018
Gunnar Kvaran og Haukur Guðlaugsson, risar í tónlist Íslendinga, héldu sálarstyrkjandi og hjartavermandi tónleika í Suðursal Hallgrímskirkju sunnudaginn 18. nóvember. Gunnar talaði um ýmsar víddir mennskunnar á milli laga. Haukur lék á píanó og Gunnar á sellóið sitt. Fjölmenni sótti þessa tónleika og mikil fagnaðarlæti urðu við tónleikalok. Þökk...

Messa og barnastarf sunnudaginn 18. nóvember kl. 11

16.11.2018
Hallgrímskirkja Næst síðasti sunnudagur kirkjuársins Sunnudaginn 18. nóvember kl. 11 Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Hólmfríði Grétu Konráðsdóttur djákna. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hefur Ragnheiður Bjarnadóttir og...

Kyrrðarstund

14.11.2018
Kyrrðarstund verður á sínum stað, fimmtudaginn 15. nóvember kl. 12. Stundin er í hálftíma, ljúft orgelspil og stutt hugleiðing ásamt bæn. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Heiðdís Hanna Sigurðardóttir, sópran syngur einsöng. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal...

Sorgin – samverustundir í Hallgrímskirkju í nóvember

13.11.2018
Hefur þú misst einhvern sem var þér kær? Samtöl um sorg og söknuð verða á dagskrá í Hallgrímskirkju á miðvikudögum í nóvember kl. 17. 14. nóvember mun sr. Halldór Reynisson fjalla um sorg í aðdraganda jóla. Allir velkomnir.  

Oddný Eir Ævarsdóttir fjallar um Biblíuna

13.11.2018
Hvaða minningar á Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur, um Biblíuna? Hvernig metur hún gildi hennar? Áhrifasaga Biblíunnar er mikilfengleg. Hvað í Biblíunni skiptir nútímafólk máli og hvað gegnir hlutverki að í menningu samtíðar? Í haust ræðir hópur fólks tala um Biblíuna í Hallgrímskirkju, rifja upp persónulegar minningar og ræða um nútímagildi...