Fréttir: Nóvember 2018

Foreldramorgnar í Suðursal

13.11.2018
Sr. Guðni Már Harðarson segir frá bókinni The Whole Brain Child og hvernig styðja má við þroska barnanna okkar með þeirri nálgun. Heitt á könnunni og nærandi nasl á boðstólnum, og kósí og afslappað umhverfi með mottum og leikföngum fyrir litla fólkið. Foreldramorgnarnir eru í Suðursal kirkjunnar og eru milli kl. 10-12 alla miðvikudaga....

Árdegismessan fellur niður og fer til Hafnarfjarðar á morgun!

13.11.2018
Á morgun, miðvikudaginn 14. nóvember mun árdegismessan falla niður en miðvikudagsöfnuðurinn mun bregða sér aðeins af bæ og kíkja í Hafnarfjarðarkirkju til að eiga sameiginlega messu með vina söfnuði sínum þar. Messan hefst kl. 8.15. Allir velkomnir þangað en nánari upplýsingar veitir Sigrún Ásgeirsdóttir s: 695-1910. Allir hjartanlega...

Hádegisbæn

11.11.2018
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst kl. 12.15. Verið hjartanlega velkomin.

Sýningarspjall við sýningarlok 11. nóvember kl. 16:30

08.11.2018
RÓSA GÍSLADÓTTIR RÆÐIR VIÐ LISTAKONUNA.   ALLIR ERU HJARTANLEGA VELKOMNIR.               Sýningu Ingu S. Ragnarsdóttur myndhöggvara - ÁHEIT / VOTIV -  í forkirkju Hallgrímskirkju, lýkur með sýningarspjalli nk. sunnudag 11. nóvember kl. 16.30 og ræðir Rósa Gísladóttir myndlistarfulltrúi Listvinafélags...

Marteinsmessa og kristniboðsdagurinn sunnudaginn 11. nóvember kl. 11

08.11.2018
Marteinsmessa og krisntiboðsdagur í Hallgrímskirkju Sunnudagur 11. nóvember kl. 11 24. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Hörður Áskelsson. Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju. Stjórnandi Helga Vilborg Sigurjónsdóttir, sem einnig segir frá kristniboði. Lesari: Margrét...

Kyrrðarstund

07.11.2018
Fimmtudaginn 8. nóvember er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, ljúft orgelspil og stutt hugleiðing ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Árdegismessa

06.11.2018
Á morgun, miðvikudaginn 7. nóvember kl. 8 eru árdegismessa í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Í næstu viku, miðvikudag 14. nóvember mun árdegismessan falla niður en miðvikudagsöfnuðurinn mun bregða sér aðeins af bæ og kíkja í Hafnafjarðarkirkju til...

Sigríður Hjálmarsdóttir um Biblíuna

06.11.2018
Hvaða minningar á Sigríður Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri, um Biblíuna? Hvernig metur hún gildi hennar? Áhrifasaga Biblíunnar er mikilfengleg. Hvað í Biblíunni skiptir nútímafólk máli og hvað gegnir hlutverki að í menningu samtíðar? Í haust mun hópur fólks tala um Biblíuna í Hallgrímskirkju, rifja upp persónulegar minningar og ræða um...

Safnaðarblað Hallgrímskirkju komið út

05.11.2018
Hallgrímskirkja iðar af lífi frá morgni til kvölds alla daga ársins. Dagskrá helgihalds, listastarfs og félagsstarfs er mikið auk þess sem ferðamönnum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Hallgrímskirkja hefur nú gefið út fréttabréf sem er ætlað að fanga eitthvað af því lífi og starfi sem fram fer í kirkjunni og á vegum...