Fréttir: Apríl 2018

Aðalfundur kvenfélags Hallgrímskirkju

10.04.2018
Aðalfundur kvenfélags Hallgrímskirkju Aðalfundur kvenfélags Hallgrímskirkju verður haldinn í hliðarsal kirkjunnar fimmtudaginn 12. apríl kl. 18.30. Athugið að um aðalfund fyrir tvö ár er að ræða, 2016 og 2017. Venjuleg aðalfundarstörf. Umræður um vorferð félagsins. Súpa og brauð. Stjórnin

Kyrrðarstund

10.04.2018
Fimmtudaginn 12. apríl er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Árdegismessa

09.04.2018
Á miðvikudagsmorgun kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

06.04.2018
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Næsta þriðjudag mun sr. Jón Dalbú Hróbjartsson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn

06.04.2018
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst kl. 12.10. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og barnastarf

06.04.2018
Messa og barnastarf Fyrsti sunnudagur eftir páska 8. apríl kl. 11 Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt Ingu Harðardóttur æskulýðsfulltrúa sem flytur hugleiðingu. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hafa Karítas Hrundar Pálsdóttir, Hreinn...

Kyrrðarstund

04.04.2018
Fimmtudaginn 5. apríl er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir stundina og Hörður Áskelsson leikur á orgel. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.