Fréttir: Janúar 2019

Hádegisbæn

20.01.2019
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Messa og barnastarf sunnudaginn 20. janúar kl. 11

18.01.2019
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hafa Inga Harðardóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir. Kaffisopi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin til messu.

Kyrrðarstund hefst aftur á nýju ári

16.01.2019
Þá er komið að kyrrðarstundum sem hefast aftur fimmtudaginn 16. janúar 2020 kl. 12. Að þessu sinni mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina en organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Turninn er lokaður kl. 9 - 12 á morgun

15.01.2019
Hallgrímskirkja - Bogi Benediktsson Miðvikudaginn 16. janúar verður turninn lokaður milli kl. 9 - 12. Opnum aftur kl. 12 og til kl. 16:30. Kirkjan er opinn frá 9 - 17.

Foreldramorgnar í kórkjallara

15.01.2019
Miðvikudaginn 16. janúar verða foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Verið velkomin.

Árdegismessa

14.01.2019
Miðvikudaginn 16. janúar kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar ásamt messuþjónum. Kjörið tækifæri að byrja daginn snemma og eftir messu er morgunmatur. Verið velkomin.

Krílasálmar

14.01.2019
Krílasálmar á morgun, þriðjudaginn 15. janúar kl. 11:30 og verða út maí. Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist, sálmar, þjóðlög og barnavísur eru notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna. Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað,...

Fyrirbænamessa

14.01.2019
Tíminn og lífið - Mynd: SÁÞ Þriðjudaginn 15. janúar kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í Suðursalnum. Á morgun mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn

13.01.2019
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst kl. 12.15. Verið hjartanlega velkomin.