Fréttir: Janúar 2019

Messa og upphaf barnastarfs 13. janúar kl. 11

11.01.2019
Skírn og líf - stef þessa sunnudags. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hafa Inga Harðardóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Karítas Hrundar Pálsdóttir. Kaffisopi eftir messu. Verið...

Kraftmikið safnaðarstarf 2019

06.01.2019
Nýja árið kallar á öflugt safnaðarstarf. Hallgrímskirkja miðar að því að vera með starf fyrir alla aldurshópa og fastir liðir eru eins og hér segir: Hádegisbænir: Hefst aftur mánudaginn 7. janúar og er alla mánudaga kl. 12:15. Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir og stundin er ávallt við Maríualtari inn í kirkju. Fyrirbænamessa/guðþjónusta: Hefst aftur...

Messa 6. janúar kl. 11

03.01.2019
Þrettándinn 6. janúar kl. 11 Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Kjartan Jósefsson Ognibene. Kaffisopi eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir. Hér fyrir neðan er messuskráin í tölvutæku formi: 190106.Þrettándinn

Greta, Guð og blessunin

02.01.2019
Hún er fimmtán ára gömul og vakti athygli Svía í haust. Í stað þess að fara í skólann á föstudögum fór hún í skólaverkfall. Hún fór að þinghúsinu í Stokkhólmi og mótmælti mengun jarðar og lofts. Hún heitir Greta Thunberg og skólaverkfallið hennar vakti svo mikla athygli, að henni var boðið til Katovice í desember síðastliðnum til að flytja ávarp á...

Nú árið er liðið ...

01.01.2019
Hvað eiga Guð og Greta Thunberg sameiginlegt? Blessun - og um hana verður rætt í prédikun nýársdags í Hallgrímskirkju. Hátíðarmessa á fyrsta degi ársins 2019 verður kl. 14. Prestar: Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson. Messuþjónar aðstoða. Hörður Áskelsson leikur á orgelið og stýrir söng Mótettukórs Hallgrímskirkju. Drottinn blessi...