Fréttir: Febrúar 2019

Krílasálmar

04.02.2019
Krílasálmar á morgun, þriðjudaginn 15. janúar kl. 11:30 og verða út maí. Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist, sálmar, þjóðlög og barnavísur eru notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna. Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað...

Fyrirbænamessa í kórkjallara

04.02.2019
Þriðjudaginn 5. febrúar kl. 10:30 verður fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir. Kaffisopi eftir stundina. Allir velkomnir.

Hádegisbæn

03.02.2019
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Messa og barnastarf sunnudaginn 3. febrúar kl. 11

01.02.2019
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hafa Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir. Frá sunnudeginum 27. janúar til 7. apríl verður þemað í sunnudagsprédikunum: Boðorðin 10. Þar verður velt...