Fréttir: Apríl 2019

Fyrirbænamessa

08.04.2019
Þriðjudaginn 9. apríl kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn

07.04.2019
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Fyrirlestur og tónleikar á vegum Tónskóla Þjóðkirkjunnar

06.04.2019
Sunnudaginn 7. apríl kl. 17 í Hallgrímskirkju, munu Eyþór Ingi Jónsson, organisti og Gregorskórinn Cantores Islandiae, flytja Messe pour les paroisses eftir franska barokktónskáldið François Couperin (1668-1733) Verkið er jafnan álitið eitt allra vandaðasta orgelverk franska barokksins. Cantores Islandiae flytur gregorssöng tengdum...

Messa og barnastarf - Föstumessa eldriborgararáðs

04.04.2019
Messa og barnastarf - föstumessa eldriborgararáðs Fimmti sunnudagur í föstu - Sunnudagur 7. apríl kl. 11 Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttir, Þóreyju Dögg Jónsdóttur, djákna. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organistar eru Björn Steinar Sólbergsson og...

Hvernig mæltist prestinum? - síðasti fyrirlesturinn

03.04.2019
Þá er komið að síðasta fyrirlestrinum í röðinni ,,Hvernig mæltist prestinum?“ um prédikanir prestanna í Hallgrímskirkju. Fyrirlesturinn verður haldinn að þessu sinni í Norðursal kl. 10. Að þessu sinni mun Sigfinnur Þorleifsson fjallar um sr. Birgi Ásgeirsson fyrrum prest. Heitt á könnunni.  Verið hjartanlega velkomin.

Hádegistónleikar - Orgel Matinée

03.04.2019
Laugardaginn 6. apríl kl. 12 verða hádegistónleikar í Hallgrímskirkju. Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju leikur verk eftir Johann Sebastian Bach og Flor Peeters. Í upphafi tónleikanna verður stutt helgistund í umsjá Ingu Harðardóttur, guðfræðings. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Hérna fyrir neðan er skráin í...

Kyrrðarstund

03.04.2019
Kyrrðarstund Fimmtudaginn 4. apríl kl. 12 Grétar Einarsson leiðir og íhugar útfrá 38. passíusálmi. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.  Eftir stundina mun Kristinn vera búinn að elda gómsæta súpu og brauð sem seld verða á vægu verði í Suðursalnum. Verið hjartanlega velkomin! 

Árdegismessa

01.04.2019
Árdegismessa miðvikudaginn 3. apríl kl. 8 eins og vanalega. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir messar ásamt messuþjónum. Morgunmatur eftir messu. Kjörin leið til þess að byrja daginn snemma! Allir hjartanlega velkomnir.

Krílasálmar

01.04.2019
Krílasálmar á morgun, þriðjudaginn 2. apríl kl. 11:30 og verða út maí. Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist, sálmar, þjóðlög og barnavísur eru notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna. Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað...