Fréttir: Október 2016

Kyrrðarstund á fimmtudögum

05.10.2016
Kyrrðarstund er á sínum stað og verður fimmtudaginn 29. september kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er dr. Sigurður Árni Þórðarson og organsti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin!

Árdegismessa

04.10.2016
Miðvikudaginn 5. septemer kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa og Liðug á líkama og sál á þriðjudögum

03.10.2016
Á morgun, þriðjudaginn 4. október kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum með altarisgöngu. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Kl. 11 byrjar svo starf eldri borgara, Liðug á líkama og sál. Á dagskránni þann...

30 ÁRA VÍGSLUAFMÆLI HALLGRÍMSKIRKJU HÁTÍÐARTÓNLEIKAR 29. október kl. 19 og 30. október kl. 17.

03.10.2016
Hátíðlegur lúðraþytur og pákuslög ásamt glæsilegum söng og hljóðfæraslætti fylla hvelfingar Hallgrímskirkju þegar Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju (áður Den Haag) flytja glæsilegu hátíðarverkin Fanfare og Te Deum eftir Charpentier og Messu nr. 1 í F-dúr eftir J.S. Bach í tilefni af 30 ára...

Orðasóðar og frelsið

02.10.2016
„Guðlast er að virða ekki hinn elskandi, leysandi og styðjandi Guð. Að Guð elskunnar sé ekki elskaður.“ Prédikun Sigurðar Árna í útvarpsmessunni í Hallgrímskirkju 2. október er að baki þessum smellum tru.is og sigurdurarni.is

Hádegisbæn á mánudögum

01.10.2016
Mánudaginn 26. september er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.