Fréttir: Febrúar 2016

Ensk messa / English Service, Sunday at 14 pm, 28. february

26.02.2016
English below: Ensk messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju kl. 14, 28. febrúar. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Þorgeir Lawrence les ritningalestra og bænir. Messuþjónn er Guðlaugur Leósson. Kaffisopi eftir messu. Allir velkomnir.   Service – with Holy...

Fræðslumorgun, sunnudagsmessa og barnastarf 28. febrúar kl. 11

26.02.2016
Dagurinn byrjar á fróðlegum fræðslumorgni kl. 10 í suðursal kirkjunnar. Gunnar Hersvein heimspekingur og blaðamaður mun flytja erindi um Biblíuna. Í sunnudagsmessunni kl. 11 mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédika og þjóna fyrir altari ásamt sr. Leonard F. Ashford og messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja og organisti er...

Kyrrðarstund í hádeginu á fimmtudögum

23.02.2016
Á fimmtudögum í hádeginu er ávallt hálftíma kyrrðarstund sem prestar kirkjunnar leiða og organistar spila. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir flytur hugvekju og bæn. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpu á vægu verði. Allir hjartanlega velkomnir.

Foreldramorgnar í kórkjallara

23.02.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallaranum alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.

Árdegismessa

22.02.2016
Góð leið til þess að byrja daginn: Árdegismessa á miðvikudögum kl. 8 þar sem sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og messuþjónar þjóna í sameiningu. Morgunkaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál á þriðjudögum

22.02.2016
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

22.02.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir notalega fyrirbænamessu í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 10.30 - 11.00. Í messunni er beðið fyrir líðandi stund í góðu samfélagi.  Allir velkomir.

Hádegisbæn á mánudögum

21.02.2016
Í hádeginu á hverjum mánudegi kl. 12.15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir kortérs bænastund þar sem allir eru velkomnir. Stundin er alltaf inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið velkomin til bænahalds.

Sigrún Ásgeirsdóttir flytur erindi á fræðslumorgni

20.02.2016
Sunnudaginn 21. febrúar fjallar Sigrún Ásgeirsdóttir sjálfboðaliði í Hallgrímskirkju um Biblíuna, gildi hennar í samtímanum og áhrif Biblíunnar á daglegt líf. Dagskrá fræðslumorgna Sunnudagur 21. febrúar Sigrún Ásgeirsdóttir fyrrum deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu og sjálfboðaliði í Hallgrímskirkju. Sunnudagur 28. febrúar Gunnar...