Fréttir: Febrúar 2016

Sunnudagsmessa og barnastarf á konudaginn, 21. febrúar kl. 11.00

20.02.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Prédikun flytja þær Inga Harðardóttir guðfræðingur og Irma Sjöfn Óskarsdóttir.  Vilborg Dagbjartsdóttir les ljóð og Hjördís Jensdóttir flytur stutt ávarp fyrir hönd Kvenfélags Hallgrímskirkju á konudegi. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja og organisti er Björn Steinar...

Kyrrðarstund í hádeginu 18. febrúar

17.02.2016
Í kyrrðarstundinni 18. febrúar leikur Haukur Guðlauksson á orgelið og sr. Jón Dalbú Hróbjartsson  leiðir íhugun og biður bæn. Samveran hefst kl. 12.00 og er í hálftíma. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpu og brauð á vægu verði. Allir hjartanlega velkomnir.

Árdegismessa 17. febrúar

15.02.2016
Árdegismessa kl. 8, góð leið til að byrja daginn. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og messuþjónar þjóna. Morgunkaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara 16. febrúar

15.02.2016
Fyrirbænamessur eru haldnar í kórkjallaranum alla þriðjudaga kl. 10.30 – 11.00. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, leiðir. Allir velkomir. 

Hádegisbæn á mánudögum

15.02.2016
Í hádeginu á hverjum mánudegi kl. 12.15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir kortérs bænastund þar sem allir eru velkomnir. Stundin er alltaf inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið velkomin til bænahalds.

Biblían á fræðslumorgni, messa og barnastarf sunnudaginn 14. febrúar

12.02.2016
Fræðslumorgnar hefjast sunnudaginn 14. febrúar kl. 10.00.  Að þessu sinni verður fjallað um Biblíuna, gildi hennar í samtímanum að mati frummælanda, minningar þeirra um Biblíuna og áhrif hennar á líf þeirra. Næstkomandi sunnudag mun Kristín Kristinsdóttir framhaldsskólakennari og sóknarnefndarkona í Hallgrímssókn fjalla um efnið. Messa og...

Norskur spunameistari við orgelið á sunnudaginn

11.02.2016
Norskur spunameistari við orgelið. Inger-Lise Ulsrud heldur tónleika í Hallgrímskirkju. Orgelspuni er eitt af því sem er á dagskránni næstkomandi sunnudag í Hallgrímskirkju, en þá heldur Inger-Lise Ulsrud, kennari í orgelspuna við Tónlistarháskólann í Osló og organisti við Uranienborgarkirkju þar í borg, tónleika í Hallgrímskirkju. Einnig...

Spásýnir og handanheimar - Myndlistarsýning byggð á Sólarljóðum opnar í Hallgrímskirkju

11.02.2016
Hið magnaða miðaldaverk Sólarljóð liggur til grundvallar myndlistasýningar sem opnar í anddyri Hallgrímskirkju sunnudaginn næstkomandi. Listamaðurinn Valgerður Bergsdóttir nefnir sýninguna Vaka / Hindurvaka og vísar þar í hið síbreytilega ástand milli lífs og dauða sem ríkir í ljóðunum. Í Sólarljóðum, sem eru eitt merkasta verk íslenskra...

Kyrrðarstund í hádeginu 11. febrúar

10.02.2016
Í kyrrðarstundinni 11. febrúar leikur Björn Steinar Sólbergsson á orgelið og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir  leiðir íhugun og biður bæn. Samveran hefst kl. 12.00 og er í hálftíma. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpu og brauð á vægu verði. Allir hjartanlega velkomnir.