Fréttir: Janúar 2017

Fyrsta kyrrðarstund ársins

18.01.2017
Kyrrðarstund hefst aftur á nýju ári fimmtudaginn 19. janúar kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir bænina og organsti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

17.01.2017
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

16.01.2017
Miðvikudaginn 18. janúar kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Íhugun, bæn og altarisganga. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama á sál í kjórkjallara

16.01.2017
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Þar er á dagskránni leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir, Mjöll Þórarinsdóttir og Katrín leikfimiskennari sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

16.01.2017
Á morgun, þriðjudaginn 17. janúar kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn

15.01.2017
Mánudaginn 16. janúar er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og barnastarf

13.01.2017
Messa, annar sunnudagur eftir þrettánda, verður 15. janúar kl. 11. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Barnastarfið er í umsjón Ingu Harðardóttur, æskulýðsfulltrúa.

Kyrrðarstundir hefjast aftur 19. janúar

12.01.2017
Vegna framkvæmda í kirkjunni verður næsta kyrrðarstund 19. janúar kl. 12:00. Hlökkum til þess að hitta ykkur öll aftur á nýja árinu.

Árdegismessa

10.01.2017
Miðvikudaginn 11. janúar kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.