Fréttir: Janúar 2017

Foreldramorgnar í kórkjallara

31.01.2017
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

31.01.2017
Miðvikudaginn 1. febrúar kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál á þriðjudögum

30.01.2017
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Þar er á dagskránni leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir, Mjöll Þórarinsdóttir og Katrín leikfimiskennari sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

30.01.2017
Þriðjudaginn 31. janúar kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Turninn lokar í dag kl. 15

30.01.2017
Í dag, mánudaginn 30. janúar lokar turninn kl. 15.00. Erum opinn á morgun og alla daga kl. 9 - 17.    

Hádegisbæn á mánudögum

30.01.2017
Í dag kl. 12.15 - 12.30 verður hádegisbæn sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er hjá Maríumyndinni inn í kirkjunni. Opið öllum, verið velkomin.    

Ensk messa 29. janúar kl. 14 / English service 29. January at 2 pm

28.01.2017
English below: Ensk messa kl. 14. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir messu. Verið velkomin. _______________________________________________________________________ English service with holy communion at 2 pm. Rev. Bjarni Þór Bjarnason is celebrant and...

Lúthersmessa - Upphafshátíð 500 ára siðbótarafmælis 29. janúar kl. 11

28.01.2017
Sunnudaginn 29. janúar kl. 11 verður hátíðarmessa sem markar upphaf 500 ára siðbótarafmælisins. Í ár munu verða mörg hátíðarhöld víða um land til þess að fanga því að 31. október fyrir 500 árum voru nelgd 95 mótmæli á hallardyrnar í Wittenberg sem var upphaf siðbót kirkjunnar. Einnig er 29. janúar líka afmælisdagur Katrínar frá Bóra og því við...

Þorrablót Kvenfélags Hallgrímskirkju

27.01.2017
Þorrablót Kvenfélags Hallgrímskirkju fimmtudaginn 2. febrúar kl. 19.00 í suðursal kirkjunnar Hefðbundinn Þorramatur, söngur, gleði og gaman. Góð samvera er gulli betri. Verð: 4500 kr. Vinsamlegast skráið ykkur hjá kirkjuvörðum eða Guðrúnu Gunnarsdóttur í síma 6993266/gudrun.gunnarsdottir1@gmail.com og Ásu Guðjónsdóttur í síma...