Fréttir: 2020

Messa sunnudaginn 21. júní kl. 11

18.06.2020
2. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Messa í Hallgrímskirkju kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og talar um samkvæmi og veisluklúður. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Messukaffi í Suðursal að lokinni...

Bænastund, tónleikar, ratleikur og tilboð í turninn

16.06.2020
  Hallgrímskirkja er opin kl. 12-18 á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Kl. 12 mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða bænastund og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið. Borgarblómin munu flytja sígildar dægurperlur kl. 15. Tónlistarhópurinn samanstendur af þremur klassískum tónlistarkonum, Mörtu Friðriksdóttur sópran, Ólínu...

Auður eða áhrifavaldur

14.06.2020
Saga Jesú um Lasarus er áhrifarík og varðar okkur öll, líka heimsmál, náttúru og pólitík. Prédikun Sigurðar Árna 14. júní er hér á eftir: Hvað er að vera ríkur? Hvenær hefur maður nóg? Finnst ríkum hann eða hún einhvern tíma hafa nóg? Og svo er það spurningin um hvað er alvöru auður og hvað ekki? Saga Jesú um ríka manninn og Lasarus er merkileg...

Hroki eða helvíti og slatti af peningum

13.06.2020
Guðsþjónusta sunnudaginn 14. júní kl. 11. Prestur Sigurður Árni Þórðarson. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Messuþjónar þennan sunnudag verða Birna Gunnarsdóttir, Stefán Jóhannsson, Hjördís Jensdóttir, Helga Kristín Diep, Sesselja Jónsdóttir og Sigrún Ásgeirsdóttir. Í prédikun verður...

SDG

11.06.2020
Víkingur Heiðar Ólafsson kom inn í himinbjarta Hallgrímskirkju í gær. Skömmu síðar kom hópur flóttamanna í forkirkjuna. Ragnar Kjartansson, myndlistarmaður og sjálfboðaliði, var leiðsögumaður hóps á vegum Rauða krossins. Ragnar hafði farið með þessum karlahóp í óvissuferð um miðbæinn. Þeir vissu ekki að Hallgrímskirkja var einn áfanginn. Við,...

Guðsþjónusta sunnudaginn 7. júní kl. 11 - Sjómannadagurinn

05.06.2020
Prestur Sigurður Árni Þórðarson. Messuþjónar aðstoða. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Kaffisopi í Suðursal eftir guðsþjónustu. Allir velkomnir.

Hvítasunnan í Hallgrímskirkju

29.05.2020
Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnudag kl. 11.00 Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og Mótettukór Hallgrímskirkju syngur Kórstjóri er Hörður Áskelsson. Messuþjónar lesa lestra. Barnastarf í umsjón Kristnýjar Rósar...

Tveir metrar - minna eða meira?

28.05.2020
Íslenskur almenningur er opinn fyrir að túlka reynslu í náttúrunni sem merkingarbæra, trúarlega reynslu. Fólk segir stundum við okkur prestana að það hafi farið í náttúrukirkjuna. Fundið fyrir Guði í grjóti og titrandi, tárvotum smáblómum háfjallanna. Sem sé Guð sé í gaddavírnum og klettakirkjum rétt eins og í kirkjuhúsunum. Prédikun Sigurðar Árna...

Guðsþjónusta, barnastarf og aðalfundur

23.05.2020
Guðþjónusta og barnastarf verða í Hallgrímskirkju kl. 11. Prestar Sigurður Árni Þórðarson og Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Félagar í Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Messuþjónar aðstoða. Barnastarfið verður í kórkjallara. Stjórnendur: Ragnheiður Bjarnadóttir og Kristný Rós Gústafsdóttir. Aðalfundur Hallgrímskirkju...