Fréttir: Nóvember 2016

Foreldramorgnar í kórkjallara

14.11.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Liðug á líkama og sál

14.11.2016
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

14.11.2016
Þriðjudaginn 15. nóvember kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn á mánudögum

13.11.2016
Mánudaginn 14. nóvember er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og barnastarf 13. nóvember kl. 11

11.11.2016
Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Douglas A. Brotchie. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Kaffisopi eftir messu.

Kyrrðarstund

09.11.2016
Kyrrðarstund er á sínum stað og verður fimmtudaginn 10. nóvember kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi leiðir bænina og organsti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

08.11.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

08.11.2016
Miðvikudaginn 9. nóvember kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

07.11.2016
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.