Fréttir: Nóvember 2016

Fyrirbænamessa í kórkjallara

07.11.2016
Á morgun, þriðjudaginn 8. nóvember kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn á mánudögum

06.11.2016
Mánudaginn 7. nóvember er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Requiem - Sálumessa 6. nóvember kl. 17

03.11.2016
REQUIEM - SÁLUMESSA  6. nóvember kl. 17 Kórtónleikar í Hallgrímskirkju Kammerkórinn Schola cantorum syngur Stjórnandi Hörður Áskelsson Sigurður Sævarsson: REQUIEM (frumflutningur) Hugi Guðmundsson: Fyrir ljósi myrkrið flýr (frumflutningur) Kjell Mørk Karlsen: Missa defunctorum (Requiem) Líkt og undanfarin ár mun Schola cantorum halda...

Messa & barnastarf 6. nóvember kl. 11

03.11.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson þjóna fyrir altari. Susan Johnson prédikar. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Kaffisopi eftir messu.

Fræðsluerindi um Hallgrímskirkju

03.11.2016
Fræðsluerindi um Hallgrímskirkju Sunnudaginn 6. nóvember: kl. 10–10.45 Frá ljótu kirkjuhugmyndinni til einnar fegurstu kirkju í heimi. Dr. Sigurður Pálsson segir frá hugmyndum um kirkjuna, undirtektum, gagnrýni og viðtökum.

Kyrrðarstund

03.11.2016
Kyrrðarstund er á sínum stað og verður fimmtudaginn 3. nóvember kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er dr. Sigurður Árni Þórðarson og organsti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

02.11.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

01.11.2016
Miðvikudaginn 2. nóvember kl. 08:15 verður árdegismessan að þessu sinni í Hafnarfjarðarkirkju. Safnað verður saman í bíla við Hallgrímskirkju kl. 07:40. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Verið hjartanlega velkomin.