Fréttir: Nóvember 2016

Jólafundur Kvenfélags Hallgrímskirkju

21.11.2016
Jólafundur Kvenfélags Hallgrímskirkju Verður haldinn fimmtudaginn 1. desember kl. 19.00 í hliðarsal kirkjunnar. Á fundinum mun Inga Harðardóttir fjalla um konurnar í Jólaguðspjallinu. Hefðbundið hangikjöt og meðlæti. Jólasöngvar og fleira notalegt í byrjun aðventu. Takið endilega með ykkur gesti. Verð 3000...

Liðug á líkama og sál

21.11.2016
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

21.11.2016
Þriðjudaginn 22. nóvember kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn á mánudögum

20.11.2016
Mánudaginn 21. nóvember er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og barnastarf 20. nóvember kl.11

18.11.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Kaffisopi eftir messu.

Guðjón Samúelsson 20. nóvember kl. 10–10.45.

18.11.2016
Guðjón Samúelsson, húsameistari og Hallgrímskirkja Pétur Ármannsson arkitekt segir frá arkitektinum sem teiknaði kirkjuna.

Tónleikar til heiðurs heilagri Cecilíu með Kór og Camerata tónlistardeildar LHÍ

18.11.2016
  Tónleikar LHÍ til heiðurs heilagri Cecilíu Hallgrímskirkja laugardaginn 19. nóvember kl. 14.  Aðgangur ókeypis!    Tónleikar til heiðurs heilagri Cecilíu með Kór og Camerata tónlistardeildar LHÍ í Hallgrímskirkju verða haldnir í Hallgrímskirkju laugardaginn 19. nóvember kl. 14.  Aðgangur  er ókeypis og allir...

Kyrrðarstund

16.11.2016
Kyrrðarstund er á sínum stað og verður fimmtudaginn 17. nóvember kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er dr. Sigurður Árni Þórðarson og organsti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Árdegismessa

15.11.2016
Miðvikudaginn 16. nóvember kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.