Fréttir: Nóvember 2016

Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju

30.11.2016
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju hefst nú um helgina, en Mótettukór Hallgrímskirkju opnar hátíðina með fjölbreyttri dagskrá hlýlegrar aðventu- og jólatónlistar sem ætti að koma tónleikagestum í hátíðarskap. Tónleikar Mótettukórsins undir stjórn Harðar Áskelssonar verða sunnudaginn 4. desember kl. 17 og þriðjudaginn 6. desember kl. 20....

Kyrrðarstund

30.11.2016
Kyrrðarstund er á sínum stað fimmtudaginn 1. desember kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Árdegismessa

29.11.2016
Miðvikudaginn 30. nóvember kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Íhugun, bæn og altarisganga. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Hádegisbæn á mánudögum

27.11.2016
Mánudaginn 28. nóvember er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Aðventustund í Hallgrímskirkju kl 16

25.11.2016
Yndisleg aðventustund í Hallgrímskirkju þar sem Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju syngur aðventu- og jólalög í bland við aðrar fallegar perlur. Tendrað verður á aðventukransinum og sýningin Jólin hans Hallgríms opnuð. Ása Valgerður Sigurðardóttir, kórstjóri og Inga Harðardóttir, æskulýðsfulltrúi leiða stundina, Hörður Áskelsson leikur á orgel...

Ensk messa - Service in english

25.11.2016
Ensk messa 27. nóvember kl 14. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir messu. Allir velkomnir. Service in english with Holy Communion in Hallgrimskirkja November 27th at 2 pm. Rev. Bjarni Þór Bjarnason will preach and celebrant. Organist is Björn Steinar Sólbergsson....

Messa og barnastarf - Fyrsti sunnudagur í aðventu

25.11.2016
Messa sunnudaginn 27. nóvember kl 11. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir prédikar. Dr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Lesarar eru Bjarni Gíslason og Sigrún Ásgeirsdóttir. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar...

Kyrrðarstund

23.11.2016
Kyrrðarstund er á sínum stað á fimmtudaginn kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og organsti er Hörður Áskelssson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Jólin hans Hallgríms

21.11.2016
Það er gaman að fara með börnunum í Hallgrímskirkju á aðventunni. Sýningin „Jólin hans Hallgríms“ verður opnuð í kirkjunni sunnudaginn 27. nóvember og stendur til 6. janúar. Þar er gömlu jólunum gerð skil, eins og þau voru þegar Hallgrímur Pétursson var lítill strákur á 17. öldinni. Baðstofa hefur verið gerð á pallinum aftan við orgelið í...