Fréttir: September 2016

Messa og barnastarf 25. september kl. 11

23.09.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Eldri félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kammerkórinn Katarina Nova frá Stokkhólmi í Svíþjóð syngur undir stjórn Lars Andersson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir...

Kyrrðarstund á fimmtudögum

20.09.2016
Kyrrðarstundirnar halda áfram í vetur og eru á fimmtudögum kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu með bæn. Prestur er sr. Sigurður Árni Þórðarson og organsti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin!

Foreldramorgnar í kórkjallara

20.09.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

19.09.2016
Miðvikudaginn 21. septemer kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál á þriðjudögum

19.09.2016
Starf eldri borgara er á morgun, þriðjudaginn 20. september. Hist er í kórkjallaranum kl. 11 – 13 þar sem ýmislegt er á dagskránni t.d. leikfimi, spjall og ávallt er endað á súpu. Mjöll Þórarinsdóttir og Helga Þorvaldsdóttir sjá um stundina. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallaranum

19.09.2016
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 11.00 er ávallt fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun, 20. september mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina sem verður með altarisgöngu. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Freki kallinn

18.09.2016
Frekjurnar eru víða, á vinnustöðum, á heimilum, í pólitík - í okkur sjálfum. En er mýkt möguleg í hörðu samfélagi samkeppninnar? Já, vegna þess að auðmýkt er ekki geðleysi heldur viska. Í prédikun 18. september ræddi Sigurður Árni um andstæðurnar mýkt og frekju, auðmýkt og hroka. Hægt að nálgast ræðuna að baki þessum smellum tru.is og...

Hádegisbæn á mánudögum

18.09.2016
Mánudaginn 19. september er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Haustferð Kvenfélagsins laugardaginn 24. september

18.09.2016
Haustferð Kvenfélags Hallgrímskirkju verður laugardaginn 24. september 2016 kl. 10.00. Farið verður að Múlakoti í Fljótshlíð. Hádegisverður á Kaffi Langbrók. Um Múlakot segir á síðu Minjastofnunar; Byggingar í Múlakoti, rústir útihúsa, garðurinn framan við húsin ásamt lysthúsinu mynda eina, órofa minjaheild sem mikilvægt er að verði...