Fréttir: Febrúar 2017

Kyrrðarstund á fimmtudaginn

15.02.2017
Hin sívinsæla kyrrðarstund er á fimmtudaginn 16. febrúar kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir bænina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Schubert ljóðakvöld í Suðursal Hallgrímskirkju 15. febrúar kl. 20

15.02.2017
Efnt verður til sérstakra Schubert ljóðatónleika í suðursal Hallgrímskirkju miðvikudaginn 15. febrúar nk. kl. 20 með hinum margverðlaunuðu Oddi A. Jónssyni, barítón og Somi Kim, píanista.  Á dagskránni eru ljóð Heine úr Schwanengesang, Gesänge des Harfners úr Wilhelm Meister eftir Goethe og valin Schubert ljóð. Lofa má einstakri upplifun á...

Foreldramorgnar í kórkjallara

14.02.2017
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

14.02.2017
Miðvikudaginn 15. febrúar kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

13.02.2017
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Þar er á dagskránni leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir, Mjöll Þórarinsdóttir og Katrín leikfimiskennari sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

13.02.2017
Þriðjudaginn 31. janúar kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn á mánudögum

12.02.2017
Á mánudögum er hádegisbæn kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er hjá Maríumyndinni inn í kirkjunni. Opið öllum, verið velkomin.

Messa og barnastarf 12. febrúar kl. 11

10.02.2017
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hafa Inga, Sunna og Guðjón. Kaffisopi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin til messu!

Kyrrðarstund í hádeginu

09.02.2017
Kyrrðarstund er á sínum stað í hádeginu í dag fimmtudag 9. febrúar kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er dr. Sigurður Árni Þórðarson og organsti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.