Fréttir: Febrúar 2017

Myndin af Hallgrími

07.02.2017
Nágranni minn á Grímsstaðaholti var að taka til heima hjá sér, grisja og taka niður myndir af vegg. Hann sá mig ganga fram hjá og hljóp út og kallaði til mín. „Má bjóða þér Hallgrím Pétursson?“ Ég sneri mér við og hváði. Svo kom hann út með prentaða mynd Samúels Eggertssonar teiknara og vildi færa mér þar sem ég þjónaði nú kirkjunni sem kennd væri...

Vetrarhátíð 2017 - SÍÐASTA KVÖLDIÐ

05.02.2017
LJÓSLISTAVERKIÐ SKÖPUN LANDS Ljósainnsetningin Sköpun lands eftir Ingvar Björn birtist á Hallgrímskirkju. Verkinu er varpað á Hallgrímskirkju öll kvöld á hátíðinni frá kl 20-24. Myndefnið er samsett úr nokkrum eldgosum og ætti því að vera ansi áhrifaríkt upp eftir allri kirkju. Frekari upplýsingar um...

Hádegisbæn

04.02.2017
Á mánudögum er hádegisbæn kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er hjá Maríumyndinni inn í kirkjunni. Opið öllum, verið velkomin.

Fjölskyldumessa

04.02.2017
5. febrúar 2017, kl. 11.00. Barna- og unglingakórinn syngur. Stjórnandi Ása Valgerður Sigurðardóttir. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón Inga Harðardóttir, æskulýðsfulltrúi Hallgrímskirkju og sr. Sigurður Árni Þórðarson. Rósa Hrönn Árnadóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir aðstoða.

Kyrrðarstund á fimmtudaginn

01.02.2017
Hin sívinsæla kyrrðarstund er á fimmtudaginn 2. febrúar kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir bænina og organsti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.