Fréttir: Febrúar 2017

Messa og barnastarf 26. febrúar kl. 11 - Opnun myndlistasýningar eftir messu

24.02.2017
Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hafa Ragnheiður og Karítas. Opnun listsýningarinnar Hilma stúdíur: Svanir í lok messu og messukaffi. Verið velkomin.

KIRKJAN LOKAR FYRR Í DAG

24.02.2017
Hallgrímskirkja lokar kl. 15 í dag föstudaginn 24. febrúar og turninn kl. 14.30.

Kyrrðarstund

21.02.2017
Næstkomandi fimmtudaginn 23. febrúar kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

21.02.2017
  Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

20.02.2017
Miðvikudaginn 22. febrúar kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

20.02.2017
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir, Mjöll Þórarinsdóttir og Katrín leikfimiskennari sjá saman um samveruna. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

20.02.2017
Þriðjudaginn 21. janúar kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn á mánudögum

19.02.2017
Á mánudögum er hádegisbæn kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er hjá Maríumyndinni inn í kirkjunni. Opið öllum, verið velkomin.

Messa og barnastarf 19. febrúar kl. 11 - Biblíudagurinn

17.02.2017
Messað er í Hallgrímskirkju kl. 11 og allir velkomnir. Þessi sunnudagur er fjölbreyttur, annar sunnudagur í níuviknaföstu, biblíudagur Þjóðkirkjunnar og einnig konudagurinn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Hólmfríði Margréti Konráðsdóttur, djákna. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju...