Fréttir: 2017

Kyrrðarstund

10.10.2017
Fimmtudaginn 12. október kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

10.10.2017
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.

Árdegismessa

10.10.2017
Á miðvikudagasmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.  

Hádegisbæn - FELLUR NIÐUR

08.10.2017
Því miður FELLUR NIÐUR hádegisbænin í dag. Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst kl. 12.15. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og barnastarf 8. október kl. 11

06.10.2017
Næstkomandi sunnudagur er sautjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Messa í Hallgrímskirkju kl. 11 og allir velkomnir. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi...

Tíminn er fullnaður

06.10.2017
Hvers virði er náttúran og umhverfið þér? Hefur kirkjan eitthvað um þau stóru mál að segja. Sunndagaginn 8. október mun Einar Karl Haraldsson hafa framsögu í Hallgrímskirkju um efnið: Tíminn er fullnaður – umbreyting nauðsyn. Allir eru velkomnir til samtalsins sem verður á jarðhæð kirkjunnar - en kórmegin. Hægt er að ganga inn að austanverðu en...

139

05.10.2017
Byrjum á vitund þinni? Ertu hér? Fylgja þér einhverjar hugsanir úr lifun morgunsins sem hindra að þú komir? Lentir þú í einhverju sem þú ert enn að vinna úr? Sagði einhver eitthvað við þig sem þú ert enn að greina og skilja? Ertu hér eða ertu þar? Margir rýna í símann í messu eða á kyrrðarstundum. Horfðu í kringum þig, fjöldi er að taka myndir...

Kyrrðarstund á fimmtudögum

04.10.2017
Fimmtudaginn 5. október kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

03.10.2017
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.