Fréttir: 2017

Lokað hluta úr degi

29.10.2017
Á mánudaginn 30. október er kirkjan lokuð frá kl. 9-13:30. Turinn opnar kl. 12:30.

Hátíðarmessa & Kantötuguðþjónusta

26.10.2017
Hátíðarmessa & Kantötuguðþjónusta Sunnudagurinn 29. október HÁTÍÐARMESSA-343. ártíð Hallgríms Péturssonar kl. 11 Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr. Sigurður Árni Þórðarson, sem predikar. Tónlistarflutningur: Mótettukór Hallgrímskirkju, Björn Steinar Sólbergsson orgel Oddur A. Jónsson bassi og Inga Rós Ingólfsdóttir selló, stjórnandi...

TESUR - opnun á sýningu

26.10.2017
Opnun á sýningunni TESUR laugardaginn 28. október kl. 14   Tesur er þátttökugjörningur sem myndlistarkonurnar Guðrún Kristjánsdóttir og Ólöf Nordal standa fyrir dagana 28. – 31. október. Verkið minnir á gjörninginn þegar Lúther negldi tesurnar 95 á kirkjudyrnar í Wittenberg í Þýskalandi 31.október 1517 og markaði þannig upphaf...

Sálmar á nýrri öld

25.10.2017
Sálmar á nýrri öld föstudagurinn 27. október, kl. 20:00. Kammerkórinn Schola cantorum syngur. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. „Sálmar á nýrri öld“ eru 26 sálmar eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason fyrir kór án undirleiks. Þessir hrífandi og fjölbreyttu sálmar fjalla um lofgjörð, bæn, gleði og sorg.   Miðaverð:...

Kyrrðarstund

25.10.2017
  Fimmtudaginn 26. október er Vígsludagur Hallgrímskirkju. Kyrrðarstundin verður á sínum stað kl. 12 í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og Hildigunnur Einarsdóttir syngur. Eftir stundina er svo...

Lúthersdagar í Hallgrímskirkju

24.10.2017
“LÚTHERSDAGAR Í HALLGRÍMSKIRKJU“  26.-31. október 2017 Fimmtudagurinn 26. október Vígsludagur Hallgrímskirkju. KYRRÐARSTUND kl. 12:00 - Hallgrímur & Lúther. Hildigunnur Einarsdóttir alt og Björn Steinar Sólbergsson orgel. Íhugun flytur sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Föstudagurinn 27. október Hallgrímsdagurinn -343. ártíð...

Foreldramorgnar í kórkjallara

24.10.2017
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.

Árdegismessa

23.10.2017
Á miðvikudagasmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

23.10.2017
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.