Fréttir: 2017

Kyrrðarstund

06.12.2017
Fimmtudaginn 7. desember kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

05.12.2017
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.

Árdegismessa

04.12.2017
Á miðvikudagsmorgnuninn fáum við heimsókn frá árdegismessuhóp Hafnarfjarðarkirkju. Messan mun hefjast kl. 8.15 í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

04.12.2017
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Ástarsögur

03.12.2017
Kirkjur þjóna ekki aðeins því hlutverki að teikna línur í landslag, vera kennileiti í sveit eða augnhvílur fólks á ferð. Kirkjuhús eru tákn um að mannfélag eigi sér dýpri rök og gilt samhengi, sem ekki bregst þó flest sé í heiminum hverfult. Það er skírskotun – hin guðlega vídd – helgistaða. Meira að baki smellunni.

Hátíðarmessa fyrsta sunnudag í aðventu kl. 11

01.12.2017
Hátíðarmessa kl. 11 í Hallgrímskirkju. Fyrsti sunnudagur í aðventu, 3. desember.   Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir prédikar. Sr. Þorvaldur Víðisson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Lesarar eru fermingarbörn, messuþjónar og fulltrúar frá Hjálparstarfinu. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur...

Opnun sýningar Erlings Páls Ingvarssonar í Hallgrímskirkju

01.12.2017
BIRTING / ILLUMINATION OPNUN SÝNINGAR ERLINGS PÁLS INGVARSSONAR Í HALLGRÍMSKIRKJU SUNNUDAGINN 3. DESEMBER KL. 12:15 Listvinafélag Hallgrímskirkju býður ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýningar Erlings Páls Ingvarssonar: BIRTING / ILLUMINATION í Hallgrímskirkju sunnudaginn 3. desember 2017 eftir messu kl. 12:15. Við opnunina segir...

Hádegisjól með Schola cantorum 1. desember

01.12.2017
Á föstudögum á aðventunni mun kammerkórinn Schola cantorum flytja fagra aðventu -og jólasöngva. Í dag, 1. desember verða hádegisjól kl. 12 – 12.30. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Miðaverð: 2500 kr. Miðasala hefst klukkustund fyrir tónleika.

Forseti Eistlands í Hallgrímskirkju

29.11.2017
Kersti Kaljulaid brosti þegar hún kom að kirkjunni. „Ég hef verið hér áður“ sagði hún og við gengum inn. „Það er dásamlegt að upplifa ljósið“ sagði hún og gekk rösklega fram að kórtröppum. Fylgdarfólkið stoppaði við fremstu bekki. Við töluðum um söng og frelsi. Ég hreifst af því á sínum tíma að Eistar sungu sig til frelsis og gaf forsetanum...