Fréttir: Janúar 2018

Kyrrðarstund

31.01.2018
Á fimmtudögum eru kyrrðarstundir í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar

29.01.2018
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.

Árdegismessa

29.01.2018
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.  

Fyrirbænamessa

29.01.2018
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á næsta þriðjudag mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn

28.01.2018
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10. Verið hjartanlega velkomin.

Ensk messa kl. 14 / English service at 2 pm

25.01.2018
English below: Ensk messa kl. 14, sunnudaginn 28. janúar. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir messu. Verið velkomin. __________________________________________________ English service 28th January with holy communion at 2 pm. Rev. Bjarni Þór Bjarnason...

Messa og barnastarf 28. janúar kl. 11

25.01.2018
Messa og barnastarf Fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu 28. janúar kl. 11 Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjá með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir...

Hallgrímskirkjukonsert - Tónleikar LHÍ

25.01.2018
Tónleikar LHÍ í Hallgrímskirkju Laugardaginn 27. janúar kl. 14 Ókeypis aðgangur Fjölbreytt og spennandi músík mun hljóma á tónleikum tónlistardeildar LHÍ og Listvinafélags Hallgrímskirkju næstkomandi laugardag, 27. janúar klukkan 14. Einleiksverk, kammerverk og ljóðasöngvar hljóma auk einleiksverks fyrir hið volduga Klais-orgel kirkjunnar en...

Kyrrðarstund

24.01.2018
Á fimmtudögum eru kyrrðarstundir í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.