Fréttir: Janúar 2018

Árdegismessa

23.01.2018
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.

Afhending söfnunarfés í messu

22.01.2018
6 milljónir til hjálparstarfs og kristniboðs Við messu í Hallgrímskirkju 21. janúar voru Hjálparstarfi kirkjunnar og Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga afhentar formlega 6 milljónir króna sem söfnuðust í Hallgrímkirkju á sl. ári. Um 20 ár eru liðin frá því farið var að gera tilraunir með messusamskot í Hallgrímskirkju og urðu þau...

Fyrirbænamessa

19.01.2018
Fyrirbænamessa Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á næsta þriðjudag mun sr. Birgir Ásgeirsson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn – breyttur tími

18.01.2018
Hádegisbæn Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10. Verið hjartanlega velkomin.

Messa og barnastarf

18.01.2018
Messa og barnastarf Síðasti sunnudagur eftir þrettánda 21. janúar 2018 kl. 11.00 Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir,...

Kyrrðarstund

16.01.2018
Á fimmtudögum eru kyrrðarstundir í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

16.01.2018
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.

Árdegismessa

16.01.2018
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.  

Hádegisbæn - breyttur tími

14.01.2018
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10. Verið hjartanlega velkomin.